157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:24]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það virðist nú vera svo að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar nenni ekki að ræða hér mál sem eru á dagskrá. Það er miður að þeir séu að einhverju leyti að nota sjómannadaginn sem er á morgun sem eitthvert skálkaskjól fyrir að treysta sér ekki í þessa umræðu sem er hér. (Gripið fram í: Við erum hér, ekki stjórnarliðar.) Mér finnst það ekki vera við hæfi. Það er alveg ljóst að þessi hátíðahöld sem eru í gangi fara fram ágætlega þó svo að við sem hér erum séum að ræða mál sem er á dagskrá þingsins og að þessi umræða haldi áfram. Ég skora á þingmenn stjórnarandstöðunnar að fara í þessa umræðu og halda henni áfram í stað þess að nota sjómannadaginn og þessi hátíðahöld sem nú standa yfir helgina sem eitthvert skálkaskjól fyrir að treysta sér ekki í umræðuna. Það væri miklu nær að ræða önnur mál sem tengjast sjómönnum ef menn vilja ekki ræða innviðafélagið.