innviðafélag.
Frú forseti. Við hv. þm. Sigurjón Þórðarson verð ég að segja: Hér erum við en ekki þið. Hér eru stjórnarandstæðingar hver á fætur öðrum að halda skynsamlegar, vel ígrundaðar ræður um það mál sem er á dagskrá. Nú sést undir iljarnar á hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni. Hann vill ekki taka þátt í þessari umræðu.
Virðulegur forseti. Þetta er allt eitthvert rugl, þessi umræða hérna hjá formanni fjárlaganefndar sem í ofanálag virðist ekki skilja það mál sem nefnd hans hefur klárað af sér.
Frú forseti. Þetta er allt einhvern veginn hálfómögulegt og -ömurlegt frá ríkisstjórninni nú um stundir. Skipulagsleysið, sleifarlag við verkstjórn með þeim hætti — sjáum bara mál eins og lagareldið. Nú er okkur sagt að nefndarálits sé að vænta á þriðjudaginn. Á þriðjudaginn eru tveir þingfundadagar eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Þá er nefndarálit í slíku risamáli væntanlegt, ef ég skil það rétt. Ég hef þessar upplýsingar ekki staðfestar en það er ekki búið að boða til fundar á mánudaginn. (Forseti hringir.) Ruglið í skipulagi þingsins er að öllu leyti á ábyrgð stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) og skömmin er þeirra.