innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil lýsa furðu minni á þessum ummælum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, formanns fjárlaganefndar, að tala hér um að við séum að gaspra hér eitthvað um málefni sjómanna þegar við eigum að vera að ræða önnur mál. Já, við erum að gera mál út af því að sú sátt sem hefur verið í áratugi á Alþingi Íslendinga þar sem frí er gefið frá þingstörfum þessa helgi, ágreiningur allur er lagður til hliðar og við gleðjumst með sjómönnum á þessum tímamótum, á þessari helgi sem er virkilega brú á milli fortíðar og framtíðar í okkar landi — það er ekkert röfl, virðulegur forseti. Þetta sýnir auðvitað enn og aftur afstöðu þessa fólks gagnvart sjómannastéttinni og þessum árlegu tímamótum í þeirra störfum. Alþingi Íslendinga lögfesti sjómannadaginn sem frídag (Forseti hringir.) 1987 og sýndi sjómönnum þá virðingu. (Forseti hringir.) Næsta skref hjá þessu ágæta fólki er væntanlega að afnema (Forseti hringir.) þá ákvörðun þingsins fyrir að verða 50 árum síðan.