157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:29]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég nenni nú ekki að elta ólar við orðræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar um það hver nennir að vera í vinnunni og hver ekki. Það sést á salnum. Salurinn talar sínu máli í því. Það sem ég gerði hins vegar í fundarstjórn forseta áðan var að vitna til þess sem kom fram í ræðum hjá hv. þingmönnum úr minni hluta fjárlaganefndar, þar sem þeir kvörtuðu undan því að það hafi ekki verið gefið tóm í nefndarstarfinu til að ræða málefni innviðafélagsins. Þess vegna, að þeirra sögn, ég er að vitna í ræður hér frá því fyrr í dag, færist efnisleg umræða í miklu meira mæli inn í þingsalinn. Umræða sem hefði verið hægt að ljúka í nefndinni. Það átti ég við þegar ég sagði að verkstjórnin hefði klikkað.