157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:30]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég tel að hæstv. forseti hefði átt að gera athugasemd við málflutning hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar hérna áðan því að hann kom ekki upp til að ræða um fundarstjórn forseta. Hann kom upp til að halda fram hreinum þvættingi um hv. þingmenn minni hlutans hér og snúa hlutunum algerlega á haus, saka þá um að nenna ekki að ræða þetta mál. Það eru hv. þingmenn minni hlutans sem hafa verið að ræða þetta mál og kalla eftir svörum. En hv. þm. Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, virðist ekki geta veitt þau svör, virðist ekki skilja málið sem hér er undir og ekki leggja í að svara spurningum og gagnrýni hv. þingmanna minni hlutans. Hann kemur svo hér upp, og hæstv. forseti leyfir því að viðgangast, og heldur því fram að hv. þingmenn minni hlutans nenni ekki að tala um málið, þeir einu sem hafa verið að tala um málið og spyrja spurninga en fá engin svör frá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni.