innviðafélag.
Frú forseti. Ég vil spyrja, í framhaldi af þessum athugasemdum við fundarstjórn forseta frá hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni: Hvar hefur hann verið? Hér í umræðunni í dag hefur framsögumaður málsins verið með ræðu, formaður fjárlaganefndar hefur verið með ræðu og fleiri þingmenn í nefndinni hafa verið með ræðu. Að halda því fram að stjórnarliðar hafi ekki tekið þátt í þessari umræðu er fásinna. En ég ítreka það sem ég sagði fyrr: Mér finnst ekki maklegt gagnvart sjómönnum að gera sjómannadaginn, sem er á morgun og hátíðahöld þeirra um helgina, að einhverju skálkaskjóli fyrir því að nenna ekki að taka þátt í þessari umræðu.(Gripið fram í: Hættu. (Gripið fram í: Þetta er ekki) boðlegur málflutningur.) Mér finnst það vera með ólíkindum hversu lágt er lagst, að í stað þess að ræða innviðafélagið fara menn hér hver á fætur öðrum upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, til þess að komast hjá umræðunni.