157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega algerlega óboðlegur málflutningur sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson fór með hér áðan. Það er svo á þessari stofnun að við virðum ákveðnar hefðir og venjur. Ein af þeim mikilvægu hefðum og venjum er sú að þingmenn hafa getað farið heim í hérað og notið þess að gleðjast með sjómönnum og fjölskyldum þeirra um þessa helgi. Með því að boða hér seint í gær til fundar á laugardegi er búið að klippa á það fyrir fjölda þingmanna að geta verið þar sem þeir helst vilja vera þessa helgi. Það er enginn að reyna að koma sér undan því að ræða um innviðafélag eða samgönguáætlun eða hvað annað sem hv. þingmaður eða aðrir vilja ræða. En dagskrárvaldið er forseta. Það væri kannski bara meiri bragur á því að forseti boðaði þingflokksformenn til fundar og reyndi að ná einhverjum samningum um að ljúka þessu þingi, því að niðurstaðan er alltaf sú hér í þessu húsi að það þarf að ná samkomulagi um hvernig skuli slíta þingi. Það gerist ekki með því að boða til þingfundar á þessum degi.