innviðafélag.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur um að þessi fundur sé ekki til þess fallinn að ýta undir að niðurstaða náist hér. Skætingur hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar er það svo sannarlega ekki heldur. Hv. þingmaður kemur hér upp og segir okkur að við eigum bara að vera fegin því að framsögumaður málsins hafi tjáð sig um það. Það var ekki hægt að ræða málið öðruvísi. Það er bara þannig sem þingsköpin virka. Það hefði ekki verið hægt að kynna málið til sögunnar öðruvísi en að framsögumaður málsins mælti fyrir því. En hvað gerði hann svo? Hann hljóp út. (Gripið fram í: Nei.) Hljóp út og lét sig hverfa.
Hér er einn hv. þingmaður sem gæti hugsanlega svarað einhverju um málið ef hann þekkti eitthvað til þess, en hann gerir það ekki. Kemur þess í stað með skæting um að menn séu að nota sjómannadaginn til að forðast umræðu og sjómönnum sé nú aldeilis alveg sama um það. Hvers er að vænta næst frá þessari hæstv. ríkisstjórn? Að hér verði fundur (Forseti hringir.) á aðfangadag og við sitjum hér ein, hv. þingmenn minni hlutans, með hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni sem komi hér upp og segi (Forseti hringir.) að fólki sé alveg sama um það þótt þingið sé að ræða málin á aðfangadag og menn séu ekkert of góðir til þess?