innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir að það skýtur skökku við að menn séu á slíkum degi sem sjómannadagurinn er með innviðafélagið í fanginu að fara yfir það viðamikla mál. Ef einhver ætlar að gefa eitthvað annað í skyn en að stjórnarandstaðan sé öll hin liðlegasta í þessum störfum þá má t.d. nefna frumvarp um verndarsamkomulag Evrópusambandsins þar sem við höfum átt í umræðum fram og til baka. Það mál er ágætt dæmi um tiltölulega letileg vinnubrögð eða ekki nægilega skörp vinnubrögð stjórnarinnar, að slíkt grundvallarmál sé svona seint fram komið og síðan sett í samhengi við ákveðnar dagsetningar sem þarf að uppfylla þótt það sé svona seint fram komið. Við höfum miklu frekar sannarlega reynst liðleg við að vinna áfram stór mál, (Forseti hringir.) jafnvel þó að reynslan af hálfu stjórnar sé ekki eins og vera ber.