innviðafélag.
Frú forseti. Nú höfum við komið þó nokkrum sinnum í fundarstjórn forseta í dag en engu að síður virðumst við ekkert heyra frá forseta alls þingsins. Á hún ekki að vera forseti alls þingsins? Ef það á virkilega ekki að slíta hér fundi á sjómannadagshelgi, þá höfum við spurt: Hvar eru hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn? Ætlar forseti Alþingis ekki að beita sér fyrir góðri umræðu hérna? Það vantar fullt af svörum og við getum spurt og spurt spurninga en, frú forseti, það kemur enginn til að svara þeim. Það kemur enginn til að svara spurningum og framsögumaður málsins, eins og kom fram, er löngu farinn úr húsi og aðrir taka ekki þátt. Hvernig lítur forseti á málið? Heldur hún að þetta sé einhvers konar refsing fyrir okkur? Við erum bara að reyna að komast að kjarna málsins hér og bæta lög svo frá okkur fari góð lagasetning.