innviðafélag.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp fjármálaráðherra um stofnun innviðafélags. Sporin hræða nú dálítið síðan á sínum tíma þegar opinbert hlutafélag um stofnun þess félags sem síðar varð Betri samgöngur ohf. fór í gegn en við skulum nú reyna að fara í gegnum þetta með einhverri skynsemi.
Það er eiginlega sérstakt afrek hjá ríkisstjórninni, fyrst fjármálaráðherra, síðan formanni fjárlaganefndar og framsögumanni nefndarálits meiri hluta fjárlaganefndar, hv. þm. Degi B. Eggertssyni — enginn þessara þriggja aðila hefur sama skilning á málinu. Það að málið sé að koma jafn seint fram og raunin er og að þessir þrír lykilaðilar málsins líti það ekki sömu augum er auðvitað algerlega galið. Maður eiginlega veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar maður heyrir lýsingar stjórnarliða, þeirra fáu sem hafa mætt til umræðunnar, en nú situr hér í salnum hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir og kann ég henni þakkir fyrir það, ekki er fleirum til að dreifa af stjórnarliðum. Það er einhvern veginn þannig að það stendur eitthvað í frumvarpinu, síðan halda formaður fjárlaganefndar og framsögumaður nefndarálits meiri hluta fram að hlutir séu með allt öðrum hætti og hæstv. umhverfis- og orkumálaráðherra stígur síðan inn og segir að hlutir séu með enn öðrum hætti. Og hér sitjum við og hv. þm. Sigurjón Þórðarson skammar okkur stjórnarandstæðinga fyrir það að vilja ekki taka þátt í umræðunni. Við höfum verið hér síðan 10.30 í morgun þó að hv. þm. Dagur B. Eggertsson hafi hlaupið út eftir að hann var búinn að fara í andsvör við aðra ræðu sem hér var haldin.
Ég ætla aðallega að láta þessa ræðu mína hverfast um áhrifamat þessa máls en áður en ég kem að því þá eru nokkur atriði sem mér finnst nauðsynlegt að halda til haga hérna í fyrstu ræðu minni um þetta mál. Mér þykir líklegt að ég gæti þurft að taka eina eða tvær til, til þess að ramma inn ákveðna hluti sem mér þykir skipta máli að sé haldið til haga.
Umræðan um veggjöld hefur komið hér upp, eðlilega, bæði í umræðu okkar um samgönguáætlun hér á síðustu dögum og síðan um innviðafélagið í dag. Það virðist vera einhver grundvallarmunur á sýn manna hvað það varðar hvaða áhrifum ætlunin er að ná fram með veggjöldum. Ég hef verið þeirrar skoðunar lengi að veggjöld geti verið ágætisverkfæri til að ná meiri tekjum af þessum einskiptis- eða fáskiptisnotendum, ferðamönnum eða Íslendingum sem eru ekki virkir notendur samgöngukerfisins en hafa samt aðgang að því og geta notað það þegar þeim hentar. Það er leið sem er góðra gjalda verð. En þá þurfa menn líka að segja það að áform séu uppi um að stíga til baka með aðra gjaldtöku því að akstur og ökutæki eru nú þegar mjög hátt skattlögð og gjaldtekin eins og regluverkið er um þessa þætti í íslenskri löggjöf. Það er hérna umræða um eitthvert sérstakt markmið sem fyrri ríkisstjórn byrjaði að ræða um og þessi ríkisstjórn ætlar nú að keyra heim, að heildarskattheimta af akstri og ökutækjum verði 1,7% af vergri landsframleiðslu. Það er einhver hugsanafeill í þessari nálgun. Ef eitthvert risafyrirtæki flytur höfuðstöðvar sínar til Íslands á þá allt í einu að hækka skatta á akstur og ökutæki um 1,7% af veltu þess fyrirtækis? Hér kemur nýtt álver. Á þá að keyra upp alla skatta á akstur og ökutæki? Það er einhver hugsanafeill í þessari nálgun.
Það er síðan annað þegar talað er um 1,7% og það kom seinast fram í svari hv. þm. Gríms Grímssonar, sem sat hér lengstum og kann ég honum þakkir fyrir, við andsvari hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur. Þegar spurt var hvort 1,7% innifælu virðisaukaskatt eða ekki þá hafði hv. þingmaður ekki hugmynd um það. En ég álasa honum ekkert fyrir það vegna þess að það hefur enginn getað svarað mér þessari spurningu sem ég hef spurt margoft, enginn þeirra sem hafa talað fyrir málinu. Þetta er allt bara einhvern veginn. Það hittir bara þannig á að það hvort það er virðisaukaskattur eða ekki á þessari tölu — það munar bara honum og það er ekkert smáræði sem þar skeikar. Þessu er ekki hægt að svara. Þetta er allt alveg furðulegt. Það er eiginlega ekki hægt að kalla þetta annað en upplýsingaóreiðu. Það hvernig þessir þrír lykilaðilar ríkisstjórnarinnar í málinu, fjármálaráðherra, hv. formaður fjárlaganefndar, Sigurjón Þórðarson, og framsögumaður nefndarálits meiri hluta, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, sjá málið sitthvorum augum dregur úr allri tiltrú á að þetta sé hugsað til enda og ekki einu sinni hálfa leið. Síðan kom hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með enn eina útfærsluna.
En þegar til kastanna kemur þá er nú sennilega bara skynsamlegt að líta til þess sem stendur í frumvarpinu sjálfu, sem er sennilega sá texti sem mest hugsun var lögð í að útfæra með þeim hætti að hald væri í. Það segir hér, með leyfi forseta, í 6. kafla greinargerðar sem kallast Mat á áhrifum:
„Markmið með stofnun sérstaks innviðafélags er að skapa skilyrði til að fjármagna uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra samgönguinnviða á fjárhagslega sjálfbæran hátt, að mestu leyti með innheimtu veggjalda á nýframkvæmdum og tilteknum þegar byggðum innviðum.“
Og hvaða innviðir skyldu nú vera nefndir í því samhengi? Það eru Hvalfjarðargöngin. Það eru Vaðlaheiðargöngin. Það er Suðurlandsvegur og Reykjanesbraut. En svo hlaupa menn frá þessum eigin orðum eins og þeir hraðast geta.
Ef maður reynir að lesa í gegnum óreiðuna þá er sú útfærsla eða það sem er líklegast að sé hugsunin með skipulagi félagsins eins og það á að vera, er að hvert og eitt verkefni þurfi að standa undir sér og standast markaðspróf Hagstofunnar. Og hvað innifelur það nú í sér? Með leyfi forseta:
„Það sem helst er skoðað í þessu sambandi er að félagið uppfylli markaðspróf þar sem tekjur, án skatta og styrkja frá ríkinu, séu a.m.k. 50% af heildarframleiðslukostnaði,“ — verkefnisins, þ.e. Vegagerðarinnar — „sem tekur til rekstrarkostnaðar, vaxtagjalda og afskrifta.“
Áhætta verkefnanna verður í reynd að liggja hjá félaginu en ekki hjá ríkissjóði og það verður að bera sig án ríkisábyrgðar. Manni þykir þetta lógískt. En síðan er þessu öllu grautað saman. Það segir hér áfram, með leyfi forseta:
„Að auki var skoðað að leggja félaginu til mannvirki sem þegar hefur verið byggt og taka upp innheimtu veggjalda og var greiningin gerð miðað við að það væru Hvalfjarðargöng sem félaginu yrðu lögð til. Áætlunin gerði ráð fyrir hóflegum veggjöldum miðað við forsendur um metinn greiðsluvilja samkvæmt rannsóknum. Innheimta veggjalda í Hvalfirði myndi hefjast 2028“ — en nú erum við um mitt ár 2026 — „á sama tíma og tvöföldun ganganna yrði sett í undirbúning …“
Það eru ekki byrjaðar framkvæmdir, menn ætla að setja tvöföldun ganganna í undirbúning og þá átti að hefja gjaldtöku á ný í Hvalfjarðargöngum. Hér er sagt síðan áfram, með leyfi forseta, „og framkvæmd hafin 2030,“ sem sagt breikkun Hvalfjarðarganga væntanlega. Síðan er haldið áfram: „Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg …“
Okkur er nokkur vorkunn að málið sé einhvern veginn með allt öðrum hætti þegar formaður fjárlaganefndar eða framsögumaður nefndarálits meiri hluta, nú eða ráðherrar ríkisstjórnarinnar tjá sig um það, öllu þessu er grautað saman. Og við fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna erum skammaðir fyrir að nenna ekki að mæta í vinnuna hér á laugardegi á sjómannadagshelgi. Þetta er allt alveg furðulegt.
Hér segir sömuleiðis, með leyfi forseta: „Stjórnvöld hafa upplýst að þau verkefni sem vilji er til að félagið skoði að taka til framkvæmda eru Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar …“ Vissulega breytist þetta allt saman nokkuð í meðförum nefndarinnar og í nefndaráliti meiri hluta og þessum frægu stjörnumerkingum samgönguáætlunar. En það breytir því ekki að sýnin er býsna skýrt sett fram í upphafi hvað varðar afstöðu hæstv. fjármálaráðherra.
Ég er hræddur um að stór hluti af þessu öllu sé á endanum einhvers lags fjárhagslegar, reikningshaldslegar barbabrellur. Í raun gengur þetta allt saman út á það að geta fært framkvæmdakostnað þessara verkefna yfir í C-hluta ríkisuppgjörsins. Þetta verði C-hluta félag, sem kallað er, og telji þar með ekki inn í skuldsetningu og efnahag ríkissjóðs eins og ef um A-hluta félag væri að ræða án þess að ég ætli að fara í langa útlistingu á þeim mun hér í pontu.
Áhrifin af þessum framkvæmdum á efnahagslífið verða þau sömu, alveg sama hvort félagið er C-hluta félag eða A-hluta félag, ruðningsáhrif á aðrar framkvæmdir og þar fram eftir götum verða þau sömu. Ég held að það væri mikilvægt, ef nokkur kostur er á, að skoða þetta heildstætt þannig að það væri hlutlaust gagnvart því hvort um A- eða C-hluta félag væri að ræða. Ég biðla kannski til einhverra nefndarmanna að óska eftir því, ef sú greining liggur ekki fyrir — það kann að vera og þá óska ég eftir að fá hana senda — en ef sú greining liggur ekki fyrir þá væri hollt að málið yrði sent til nefndar milli 2. og 3. umræðu þar sem það yrði leitt út og eftir atvikum óskað umsagnar aðila sem hafa mest með fjármálastöðugleika og annað slíkt að gera nú um stundir, frá Seðlabankanum. Ég veit alla vega ekki til þess að hann hafi komið á fund nefndarinnar að ræða þessa útfærslu en það kann þó að vera. Ég sé að það er í öllu falli ekki umsögn þar að lútandi.
Ég verð eiginlega að halda því til haga, manni finnst það svo sjálfsagt en það er kannski rétt að halda því til haga, að ég er mjög fylgjandi því að við leggjum aukna áherslu á verklegar framkvæmdir og uppbyggingu samgöngukerfisins. — Nú hringlar í hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, hann var hissa á þessu. Það er þó þannig að við þurfum að átta okkur á heildaráhrifunum því akkúrat núna erum við í þeirri stöðu að við erum í langvarandi slag við verðbólgu sem er að valda fyrirtækjum og heimilum landsins gríðarlegum vandræðum. Aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ekki til þess fallnar að draga úr þeim verðbólguþrýstingi og verðbólguvæntingum. Bara það eitt að jafn lítt útfært og frumvarpið er, eins og hv. framsögumaður nefndarálits meiri hluta fór hér yfir í ræðu sem hann flutti rúmlega eitt, sennilega var það andsvar — það á eftir að útfæra býsna margt, næstum því allt í þessu félagi. Því segi ég: Hvers vegna hinkrum við ekki bara fram á haust? Ég hef veitt því athygli að hv. þm. Sigurjón Þórðarson hefur óskað eftir að fara í andsvar og ef honum vinnst tími til, þó að ég sé auðvitað ekki í neinni stöðu til að spyrja spurninga, þá væri áhugavert að heyra afstöðu hans til þess að fresta málinu til hausts. Ég held að hér í þinginu sé nefnilega holt og bolt almenn sátt um þá leið að stofna innviðafélag en útfærslan skiptir máli og þessi furðulega áhersla á að kjörnir fulltrúar megi helst aldrei snerta neitt með priki er alveg óþolandi. Viðreisn hefur kannski gengið lengst í þeim efnum með furðulegri hanteringu á stjórnum hinna ýmsu opinberu hlutafélaga. En látum þá umræðu nú bíða seinni tíma.
En eins og verðbólguslagurinn blasir við okkur núna þá er ekkert víst að bestu skilaboðin séu þau að segja efnislega: Við ætlum að stofna þetta félag, slíta það frá pólitískri ábyrgð hér í þinginu og svo finnum við bara út úr þessu síðar. Það er ekki víst að það séu skilaboðin sem Seðlabankinn er að bíða eftir að heyra þegar kemur að næstu ákvörðun í vaxtamálum og síðan áframhaldandi mati og þróun verðbólguvæntinga í samfélaginu.
Það er auðvitað þannig að með þessu eru áform um að auka heildarskattheimtu af akstri og ökutækjum ef við horfum á þetta heildstætt. Ef markmið um 1,7% af vergri landsframleiðslu raungerist og þetta bætist ofan á og síðan virðisaukaskattur ofan á það þá er skattheimta á akstur og ökutæki á Íslandi orðin sú hæsta í heimi og þannig að það munar miklu. Það er beinlínis undarlegt að það sé ekki hægt að ná samtali við hæstv. fjármálaráðherra um þá sýn eða formann fjárlaganefndar, sem ég held að við ættum að sammælast um að bjóða að komast hér aftur í ræðu til að hægt sé að eiga við hann andsvör aftur. Ég er alveg viss um það að þingmenn allir fagna því að hleypa honum fram fyrir sig hér á mælendaskrá, hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, af því að hann nennir svo sannarlega að mæta til vinnunnar í dag.
Það er þessi heildarsýn sem mér hefur þótt vanta lengi, bæði hvað gjaldtökuna varðar og framkvæmdahlutann, vegna þess að sú hugsun sem kemur fram í innviðafélögum almennt, ég er ekki að tala um þá útfærslu sem hér er lögð til heldur þá hugsun að skapa verkfæri og mekanisma þar sem væri hægt að stækka verkefni, bjóða út heildstæðari verkhluta, lengri vegarkafla þar sem eitt verk tekur fjögur til sex ár jafnvel, það eru saman láglendisvegur og hálendisvegur og þar fram eftir götunum, til að ná fram hagræði hjá þeim sem bjóða í verkið — ég held að öllum hér inni hugnist sú nálgun vel. Þannig að þetta snýst ekki um að bregða fæti fyrir það að innviðafélag verði stofnað, heldur erum við hérna að reyna að ná fram upplýsingum um það hvernig stjórnvöld, meiri hlutinn, ríkisstjórnarflokkarnir raunverulega hugsa þetta með tilliti til þess hvernig félagið verður stillt af og hvernig þetta verður allt saman fjármagnað, því það er annað. Nýr borgarstjóri í Reykjavík hefur sagt með mjög skýrum hætti að henni hugnist ekki að gjaldtaka á höfuðborgarsvæðinu atvikist bara með einhverjum hætti. Það er í raun það sem er dálítið verið að gefa boltann með eins og frumvarpið liggur fyrir.
Það er bölvað að mál sem er þetta flókið sé að koma hér fram þegar það eru, eftir daginn í dag, minnir mig, fjórir þingfundadagar eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis, það er einhvers lags súr bónus. Í öllu falli held ég að það væri skynsamlegt að þetta mál fari til nefndar milli 2. og 3. umræðu þar sem lagt yrði heildstætt mat á áhrifin ef horft er fram hjá A- og C-hluta sjónarmiðinu, hver áhrifin yrðu til skamms tíma sérstaklega af því að við verðum líka að hafa væntingar um það að einhvern tímann fáum við betri ríkisstjórn sem hefur meiri aga á rekstrargjaldahluta ríkisins því að það er miklu skárra og getur verið bara mjög gott upp á framtíðarstöðu ríkissjóðs að vel sé litið til með viðhaldi og fjárfestingum sem eru arðsamar og skapa í þessu tilviki bætt umferðarflæði og getu til að flytja afurðir til og frá svæðum og þar fram eftir götunum. Það er miklu mikilvægara og milljarður sem fer í slíka uppbyggingu er miklu betri en milljarður sem fer í rekstur, stundum ekki bara arðlausan heldur verri en engan, svo ég minni nú bara á ETS-kerfið og fleira sambærilegt.
Þetta eru allt saman hlutir sem við þurfum að skoða heildstætt og við verðum vonandi komin á þann stað mjög fljótlega að við getum gefið í hvað innviðafjárfestingu varðar. En við eigum ekki að vera hér upptekin af því að réttlæta það með einhverjum bókhaldsbrellum og rökræðum um A- eða C-hluta stofnun. Við eigum að geta réttlætt það af því að það er skynsamlegt fyrir hag lands og þjóðar. Og það eru samgönguframkvæmdirnar svo sannarlega gegnumgangandi. Ég held að ef okkur tækist að komast á þann stað þá gætu allir þingmenn og allir þingflokkar, er ég nokkuð viss um af því að það fækkaði aðeins þingflokkum á þingi við síðustu kosningar, fylkt sér á bak við innviðafélag sem væri skynsamlega fram sett og skipulagt. Ég held að það hafi nú verið upphafleg áform hæstv. fjármálaráðherra að ná öllum þingflokkum saman að undirbúningi máls sem þessa. En svo var, eins og með margt annað, horfið frá þeim vangaveltum í miðri á. Það er auðvitað eitthvað sem hæstv. fjármálaráðherra þarf að fara yfir en ég hef ekki forsendur til að útskýra.
Ég læt lokið þessari fyrstu ræðu minni (Forseti hringir.) og vil biðja virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá þar sem ég ætla að fara í afmarkaðri ræðuhluta um þetta mál.