157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:59]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína og yfirgripsmikla ræðu. Það er augljóst að hv. þingmaður hefur góða þekkingu á því sem við stöndum frammi fyrir og ég tek undir að það er eins og meiri hlutinn sé aðeins óviss um hvað eigi nákvæmlega að setja í lög.

Mig langar að nefna hér í mínu fyrra andsvari að verið sé að tala um mögulegt veggjald á einu svæði og að það eigi að nota þjónustugjaldið af því til að byggja upp samgöngumannvirki á öðrum svæðum. Þá er það ekki eins og það form sem við þekkjum og hefur reynst vel, eins og Hvalfjarðargöngin, þar sem þú greiðir fyrir það mannvirki sem þú nýtir. Mig langar að spyrja hv. þingmann, þar sem við erum bæði þingmenn fyrir suðvesturhornið, hvort það sé vænlegt til árangurs og hvort þetta sé sanngjörn leið til að fá fólk til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem bíður. Þetta væri þá að mörgu leyti svipað skattheimtu þar sem það er verið að taka gjald til að setja í eitthvað annað. Ég velti fyrir mér hvort þessi hugmynd um að þeir greiði sem noti, við erum aðeins að stía það í sundur: Er það farsælt? Mig langar líka að nefna að þessu leyti til að það virðist vera eins og það sé misskilningur því að annars vegar var talað um að innviðafélagið gæti notað þessa sjálfsögðu tekjuöflun með stórkostlegum hætti þar sem hún myndi snjóboltast áfram en hins vegar er talað um þetta sem þjónustugjald og þjónustugjald er þeim takmörkunum háð að það má ekki setja álagningu á það. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður viti hvort hér sé um mistök að ræða eða hvort þetta gangi upp í raun og veru.