innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir andsvarið. Svo ég byrji á lokaspurningunni varðandi þjónustugjaldið og að ekki megi leggja álagningu á það þá hefur það komið fram í svo mörgum ræðum, nefndaráliti og frumvarpinu sjálfu, sem ég hafði til hliðsjónar áðan, að menn tala í kross. Ég leyfi mér að líða ekki mjög illa yfir því að skilja þetta ekki til enda í ljósi þess að það er augljóst að talsmenn málsins gera það ekki. Það bara blasir við og þeir tala í kross. En þetta atriði varðandi að þeir greiða sem nota, það er vissulega verið að slíta það í sundur með þessari hugmynd um að menn láti þetta flæða á milli verkefna. Ég held að það geti varla orðið niðurstaðan að sú útfærsla verði ofan á. Bara ef við horfum á það t.d., ég gleymdi nú frumvarpstextanum sjálfum í sæti mínu, en efnislega segir þar að Vaðlaheiðargöng verði lögð þarna inn sem eigið fé. Vaðlaheiðargöng skila engu inn í svona púllíu því þau gera ekkert nema standa undir sjálfum sér og það koma skuldir með, ekki nema ríkissjóður ætli að gera þær upp á undan sem væri furðulegt. Þetta er ekki hugsað til enda, það blasir við. Það er enginn rekstrarlegur ávinningur af því fyrir svona félag og ekki eiginfjárávinningur heldur nema ríkissjóður ákveði að gera upp skuldir Vaðlaheiðarganga, svo það dæmi sé tekið. Ég held því að menn þurfi bara að stíga skref til baka og gera aðra atlögu að því að stilla þessu skynsamlega upp þar sem allir sjá þetta sömu augum. Þá held ég að það verði býsna góð sátt um þetta allt saman.
En varðandi svarið við spurningunni um hvort þetta sé sanngjörn leið þá þarf ég að koma inn á það í seinna andsvari.