innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að halda örstutt áfram með þessa hugmynd um að það sé verið að taka þjónustugjald eða einhvers konar gjald, það virðist ekki alveg liggja fyrir, á einu svæði og fara með það eitthvert annað. En svo er flökkusaga hér á ganginum um að það eigi að búa til einhvern radíus af svæði þar sem þú innheimtir gjald og það verði þá notað innan þess radíuss. Ég sé það hvergi í gögnum málsins þannig að ég veit ekki hver staðan á því er og spurning hvort hv. þingmaður hafi upplýsingar um það.
Hv. þingmaður nefndi hér Vaðlaheiðargöng og í 4. gr. frumvarpsins segir að ráðherra sé heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum sem tilheyra ríkinu í formi hlutafjár. Þá langar mig aðeins að velta upp við hv. þingmann 40. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir, með leyfi forseta:
„Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.“
En þar segir líka: „Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.“
Ég velti fyrir mér, þar sem það kemur fram í þessu máli að þetta eigi ekki að verða partur af fjárlögum, hvaða samgöngumannvirki er þarna um að ræða. Eins og ég skil gögn málsins á heldur ekki að tiltaka einhver einstök mannvirki heldur skilja eftir opna heimild til handa ráðherra til að geta tekið til sín þessar eignir í formi hlutafjár. Ég velti því fyrir mér hvort það standist stjórnarskrá og hallast að því, ekki að meira athuguðu máli, að svo sé ekki.