157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka prýðisgott andsvar. Þessar heimildir eru mál sem ég var að hugsa um að reyna að halda frístandandi ræðu um. Einhver þingmaður, ég man ekki hver það var, var að ræða 6. gr. fjárlaga í þessu samhengi. Það sem vantar upp á þar er að það verður að koma eitthvert gjald á móti. Þú tekur ekki bara einhverja eign út með heimild í 6. gr. á núlli. Ég held að margar hugmyndir í frumvarpinu, eins og texti þess liggur fyrir, gangi ekki upp með tilliti til laga um opinber fjármál, með tilliti til stjórnarskrár, með tilliti til útfærslu fjárlaga hvers tíma og líka bara með tilliti til almennrar skynsemi. Að gera mikið úr því að Vaðlaheiðargöng fari þarna inn í félagið, sem eiga í mesta basli með sinn eigin rekstur í dag — ég verð að viðurkenna að ég hreinlega skil ekki hverju Vaðlaheiðargöng, ágæt sem þau eru, eiga að bæta við þegar kemur að eiginfjárgrunni félagsins.

Sama er með það sem hv. þingmaður nefnir: Að afhenda þegar byggða veghluta, Hvalfjarðargöng eða eitthvað annað, það stenst ekki að gefa það, hvað þá úr ríkissjóði, yfir til einhvers sem verður C-hluta félag. Ég held að það gangi ekki upp og þurfi ekkert mjög ígrundaða skoðun þar að lútandi. Það hlýtur að þurfa að koma eitthvert raunverð fyrir — auðvitað fær ríkissjóður eignarhlutafé en þar erum við aftur komin í þessar barbabrellur sem ég held að við þurfum að skoða vel áður en ramminn er settur með þeim hætti sem hér er gert.

En hraðsvar, frú forseti, fyrirgefðu, bara tíu sekúndur, um hvort þetta sé sanngjarnt. Ég held (Forseti hringir.) að það sé í öllu falli ekki sanngjarnt ef við sjáum fram á samfellda veghluta í einhverja átt út frá borginni með mörgum gjaldhliðum (Forseti hringir.) án þess að tekið sé tillit til heildaráhrifa á gjaldtöku. Ég kem inn á það síðar með dýpri hætti.