innviðafélag.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir afar upplýsandi ræðu en það var ekki aðeins að hann fyndi þessu góða þingmáli, þessu góða frumvarpi, allt til foráttu (Gripið fram í: Nei …) heldur mátti ekki skilja hv. þingmann öðruvísi en að hann vildi fresta þessu máli. Það er viðkvæðið þegar öll mál sem hafa komið hingað frá meiri hlutanum þá á alltaf að fresta þeim fram á haustið eða fresta þeim fram yfir eitthvað. Það er viðkvæðið. Það sem meira var að það virtist koma fram hjá hv. þingmanni, frú forseti, að það ætti jafnvel að fresta framkvæmdum. Það lá ekkert á. Það var verðbólga og það lá ekkert á að fara í framkvæmdir þannig að það yrði ekki mikið gert ef þessi ágæti flokkur, Miðflokkurinn, fengi völdin einhvern tímann. Það ætti bara að fresta öllu. Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í snýr að veggjöldum. Er Miðflokkurinn einfaldlega á móti veggjöldum eða sér hann einhverja klæki í þessu máli?