157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Enn einu sinni færir hv. þm. Sigurjón Þórðarson mér heim sanninn um að virk hlustun sé ekki ein af hans sterku hliðum. Ég veit ekki hversu oft ég hef sagt það í andsvari við hv. þingmann en ég ætla að gera eina tilraun enn: Veggjöld geta verið prýðileg til þess brúks að ná auknu hlutfalli tekna af einskiptis- og fáskiptisnotendum. Ferðamenn má nefna sem dæmi í þessu samhengi. Hv. þingmaður gæti eflaust nefnt Gísla Martein Baldursson sem ferðast um á hjóli en tekur bílinn af og til, geri ég ráð fyrir. (Gripið fram í: Með konunni.) Við þekkjum söguna úr Hvalfjarðargöngum, með hvaða hætti svona einskiptisnotendur báru býsna hátt hlutfall heildartekna þegar afsláttarkjör stórnotenda voru við lýði. Í þessu samhengi geta veggjöld algjörlega komið til greina en þá höfum við í Miðflokknum líka sagt: Það má þá ekki vera hrein viðbót ofan á aðra gjaldtöku sem er nú aldeilis há fyrir heldur þurfi þá að stíga til baka, annaðhvort í kílómetragjaldinu eða einhverjum öðrum gjöldum þannig að þetta sé, eins og ég segi, ekki hrein viðbót ofan á allt sem fyrir er. Ég vona að þetta hafi svarað spurningunni af því ég hef farið yfir þetta það oft.