innviðafélag.
Frú forseti. Ég ætla að vona að virk hlustun hafi verið nægjanleg til að skilja þetta svar með þeim hætti sem ég held að sé eina leiðin, þ.e. að Miðflokkurinn er ekki á móti veggjöldum ef það verður ekki til þess að auka það fé sem fer til vegamála. Það ætti þá að draga úr öðrum gjöldum til að það færi ekki meira til vegamála. Það er ekki hægt að álykta annað heldur en að stefna Miðflokksins sé að setja ekki aukið fé til vegamála með þessum hætti. Það er nokkuð ljóst. Vegna þess að hv. þingmaður var að velta því fyrir sér, frú forseti, hvort það yrði innheimtur virðisaukaskattur þá er það gert við Vaðlaheiðargöng … (BergÓ: Er það 1,7%?) — það er auðvitað eitthvað sem er … (Forseti (EÁs): Ræðumaður er með orðið.)
Frú forseti. Það er alveg ljóst að við erum hér að stofna félag sem mun öðlast að einhverju leyti sjálfstætt líf og þarf að laða til sín fjárfesta. Um það snýst leikurinn. Það að ætla að negla niður alla þætti þess, eins og hv. þingmaður vill gera og telur raunsætt að gera, þegar við erum að hleypa þessu félagi af stokkunum … (Gripið fram í.) — mér finnst vera með ólíkindum að menn skuli ekki sjá tækifærin í þessu, að fara svipaðar leiðir og aðrar þjóðir í kringum okkur, hvort sem það eru Færeyingar, Danir eða Norðmenn. Miðflokkurinn er þver á móti og virðist einfaldlega einnig vera á móti því að uppbyggingu samgöngukerfisins sé hraðað. Ég held að það sé áhyggjuefni fyrir fólk á landsbyggðinni að það sé hér flokkur sem er í rauninni að leggja stein í götu samgöngukerfisins í stað þess að greiða þessu máli leið til að hraða uppbyggingu kerfisins.