157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni þessa stórundarlegu ræðu en auðvitað má bara hafa gaman af þessu. Stutta svarið er að ég held ég geti sagt að allt sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði í andsvari sínu er rangt. Nú skal ég reyna að nálgast málið af einhverri skynsemi. Það sem við höfum sagt í Miðflokknum, alveg frá stofnun, er einmitt að það þarf að auka áherslu á innviðauppbyggingu í samfélaginu en við höfum líka bent á það að ef við horfum heildstætt á gjaldtöku af akstri og ökutækjum þá er ekki verið að verja til nýframkvæmda og viðhalds nema hluta þeirrar skattheimtu sem kemur í ríkissjóð vegna aksturs og ökutækja og er ég þá að halda virðisaukaskatti alveg fyrir utan myndina. Það er auðvitað kostulegt að formaður fjárlaganefndar hafi ekki hugmynd um það hvort 1,7% gjaldaviðmiðið innifeli virðisaukaskatt. (Gripið fram í.) Þú bara svaraðir því ekki hérna rétt áðan. Geturðu upplýst mig um það núna, hv. þingmaður? (Forseti (EÁs): Ekki samtal á milli ræðumanna.) Ég var bara að svara spurningu hv. þingmanns sem gargaði á mig hér úr hliðarsal.

Það er þannig að þörfin fyrir aukna innviðauppbyggingu er svo augljós en menn verða að nálgast hana út frá því að ná einhverjum árangri á grundvelli þeirra tekna og gjalda sem akstur og ökutæki eru að skila ríkissjóði í dag. Það er fremst í röðinni áður en við förum að bæta enn ofan á gjaldtöku á akstur og ökutæki, fyrst með einhverju furðulega tilkomnu 1,7% viðmiði og síðan með öllum þessum sértæku tafagjöldum, borgarlínu, innviðagjöldum og veggjöldum hér og þar. Við verðum að skoða þetta heildstætt. Það tókst t.d. algerlega frábærlega til við Hvalfjarðargöngin sem voru vissulega í meginatriðum hrein viðbót. Það varð samt sparnaður. Menn hættu að borga með Akraborginni (Forseti hringir.) stuðning og þar fram eftir götunum. En punkturinn er sá að við verðum að skoða þetta heildstætt einu sinni, bæði út frá tekjum (Forseti hringir.) og gjöldum, framkvæmdaþunga og framkvæmdaþörf.