staða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna við mögulega inngöngu Íslands í ESB.
Virðulegur forseti. Ein mikilvægasta þjóðaratkvæðagreiðsla lýðveldisins verður haldin 29. ágúst þar sem Íslendingar greiða atkvæði um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ein af meginröksemdafærslum hæstv. utanríkisráðherra er að í ljósi breyttrar stöðu í heimsmálum sé mikilvægt að skoða þennan möguleika. Afar athyglisverð grein hefur verið skrifuð af Gunnari Pálssyni, fyrrverandi sendiherra og einum af helstu sérfræðingum landsins í öryggis- og varnarmálum og fyrrum sendiherra okkar hjá Atlantshafsbandalaginu.
Virðulegur forseti. Hann hefur gagnrýnt þessa nálgun stjórnvalda. Því langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra — það er bent á það í grein Gunnars að Ísland njóti sérstöðu innan NATO þar sem varnir Íslands byggist á tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin sem á sér enga hliðstæðu meðal annarra NATO-ríkja — hefur utanríkisráðuneytið aflað formlegrar afstöðu bandarískra stjórnvalda um hvort þessi sérstaða Íslands myndi haldast óbreytt ef Ísland gengi í Evrópusambandið?