157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

atvinnuleysi innan ESB.

[10:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu en menn eru ekki alveg sammála um í hvað felst í henni. Aðalatriðið er þó þetta: Við þurfum að taka upplýsta umræðu byggða á staðreyndum um hvað felst í að vera í Evrópusambandinu ef við viljum sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það hefur vakið athygli að ríkisstjórnin hefur í rauninni hagað málum þannig að umræðan sé eins lítil og mögulegt er, eins og náttúrlega kemur t.d. fram í því hvenær við munum kjósa. Ásetningurinn er augljós. Og skýrsla um evruna, sem ríkisstjórnin stóð fyrir kemur ekki fram fyrr en við erum búin að greiða atkvæði og taka umræðu um aðildina. En það breytir því ekki að það hafi verið umræða um skýrsluna enda mikilvægt að gera það. Það er augljóst að fullyrðingar stjórnarliða um að hér muni allt verða betra við að taka upp evru og hér muni lækka verðlag og vextir og verðbólga standast ekki. En það sem er alveg skýrt er að hagsveiflan, ef við tökum upp annan gjaldmiðil, mun fara í gegnum vinnumarkaðinn, mun annaðhvort fara í gegnum lækkun launa eða aukið atvinnuleysi.

Það hefur vakið athygli mína hvernig stjórnarliðar og forystumenn í Viðreisn hafa talað um þetta, talað eins og það sé bara allt að því eftirsóknarvert að fá ESB-atvinnuleysið, að það sé bara gott að þurfa að fara til útlanda eftir vinnu. Ég tók t.d. eftir ummælum Gylfa Zoëga sem situr í stjórn Seðlabankans fyrir Viðreisn, hann taldi að fólk hefði bara gott af þessu. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er hún sammála þessu? (Forseti hringir.) Er ESB-atvinnuleysi eitthvað sem er eftirsóknarvert fyrir fólkið í landinu?