157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

atvinnuleysi innan ESB.

[10:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður var að ýja að því að það væri ekki alveg skýrt um hvað væri verið að kjósa en mér finnst einmitt að þingið og hv. utanríkismálanefnd hafi lagt sig fram um það sérstaklega að fara að tilmælum Feneyjanefndarinnar sem m.a. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til að yrði leitað til og það er alveg skýrt að Feneyjanefndin leggur mikla áherslu á að það sé ekki verið að kjósa um aðild heldur að það sé skýrt að það sé verið að kjósa um samning, að það sé verið að hefja samningaviðræður að nýju. Eftir því vann nefndin. Þess vegna breytti hún m.a. orðalaginu, til þess að það væri alveg skýrt að landsmenn fá tækifæri 29. ágúst til að kjósa um það hvort við eigum að hefja samningaviðræður að nýju. Ef fólk segir já þá er það búið að tryggja sér aðra þjóðaratkvæðagreiðslu af því að við ætlum að klára samninga og gera það vel. Þessi framsetning, og ég ætla bara að leyfa mér að segja það, er enn eitt dæmið um að reyna að gára vatnið og reyna að gera þetta óljóst.

Ég myndi gjarnan vilja að hv. þingmaður myndi segja mér skýrlega hvað ESB-atvinnuleysi er, af því að Evrópusambandið er samband 27 ríkja og atvinnuleysið er mjög mismunandi eftir ríkjum. Það er bara mjög mismunandi hvernig hlutirnir virka hjá þeim sem eru með evru eða gjaldmiðla sína tengda við evruna. Ég tek eftir því að það er ekki verið að benda mikið á til að mynda Danmörku eða Færeyjar. Færeyjar eru ekkert ósvipað atvinnusvæði og við, byggja á ferðaþjónustu, fiskeldi og sjávarútvegi, mjög svipað. Þar er atvinnuleysi um 2%. Þar eru stýrivextir 2,5%, minnir mig, eða innan við 3%. Af hverju eru aldrei þau lönd sem eru svona sambærileg og við, með svipuð og líkt þenkjandi viðhorf og við, tekin inn í þessa breytu? (Forseti hringir.) Enn og aftur, þetta er bara með mjög mismunandi hætti og ég vil undirstrika (Forseti hringir.) að við höfum aldrei sagt að evran væri töfralausn. Það þarf aga í íslenskt samfélag, hvort sem það er innan ríkisfjármálanna eða á vinnumarkaði (Forseti hringir.) og því held ég að við hefðum gott af.