157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

atvinnuleysi innan ESB.

[10:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að hún hafi sett ESB-met í mótsögnum. Fyrst kemur hæstv. ráðherra og segir að það sé alveg skýrt um hvað er kosið. Það segir í meiri hluta nefndarálitsins að það eigi að hefja aðildarviðræður. Svo segir hæstv. ráðherra að ljúka þeim. Hvort er það? Sömuleiðis eru hér stjórnarliðar sem hvað eftir annað — þeir eru með myndbönd þar sem þeir auglýsa afslátt á pítsum ef við göngum í Evrópusambandið, hvorki meira né minna.

Virðulegur forseti. Svo kemur hæstv. ráðherra og segir: Heyrðu, þetta er allt mjög mismunandi, það er allur gangur á öllu eftir því hvaða land er. En það er búið að lofa okkur hérna 25% lækkun á matvælaverði ef við göngum inn. Það liggur hins vegar alveg fyrir og er alveg skýrt að ef við tökum annan gjaldmiðil verður hagsveiflan, virðulegi forseti, tekin á vinnumarkaðnum. Það er óumdeilt. Það er ESB-atvinnuleysið. Ég get gjarnan talað um Danmörku. (Forseti hringir.) Það er ekki auðvelt fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði í Danmörku. En aðalatriðið er þetta: Er hæstv. ráðherra sammála Gylfa Zoëga, fulltrúa Viðreisnar í Seðlabankanum, (Forseti hringir.) þar sem hann talar um að það sé bara eftirsóknarvert að fólk þurfi að flytja frá landinu til að sækja sér vinnu?