atvinnuleysi innan ESB.
Virðulegi forseti. Ég tel ástæðu til að hnykkja á því og útskýra og ítreka fyrir þingmanninum að þingið breytti spurningunni yfir í að hefja samningaviðræður á ný. Eitthvað sem maður byrjar á — þá er mitt markmið að klára það. (Gripið fram í.) Það er verið að hefja samningaviðræður á ný með það að markmiði að klára samningaviðræður með það í huga að tryggja hagsmuni Íslands. Ég skil ekki hvað er svona flókið við það. Ef fólk segir já þá er það að öllum líkindum búið að tryggja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu með það að markmiði að Íslendingar allir fái staðreyndir á borðið, ekki getgátur eins og er endalaust verið að setja fram hér af hv. þingmanni. (Gripið fram í.) Við skulum bara hafa það í huga að Ísland er dýrasta land í heimi, nýbúið er að koma með kannanir um það. Mér finnst erfitt að heyra að hv. þingmaður vilji ekki m.a. gefa ungu fólki kost á, þegar það er búið að taka ákvörðun um, að kaupa íbúð öðruvísi en að þurfa að borga hana þrisvar sinnum. Það er veruleikinn sem hv. þingmaður vill bjóða (GÞÞ: … svara.) íslensku fólki. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)
(GÞÞ: Svara spurningunum. )Ég er að svara spurningum. Ég svaraði því m.a. í fyrra svari. Mér finnst það miður en mín svör eru ekki alltaf eftir hentugleika hv. þingmanna. Þannig er það. (Forseti hringir.) Við skulum hafa það alveg skýrt: Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um að hefja samningaviðræður á ný. Þetta snýst um að ná samningum við Evrópusambandið (Forseti hringir.) en ekki einhverjar getgátur um aðild eða eitthvað annað eins og hv. þingmaður vill alltaf vera láta(GÞÞ: Forseti. Fæ ég svona ræðutíma?).
(Forseti (ÞSv): Ég vil biðja hv. þingmenn um að halda ró sinni hér í þingsal.)