157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

gjaldtaka í lagareldi og staða þess.

[10:48]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Í nýsamþykktri atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar segir að unnið skuli skipulega að stórfjárfestingum í nýjum kjölfestuverkefnum á landsbyggðinni. Sérstaklega sé litið til frekari vaxtarháframleiðnigreinar á borð við lagareldi. Þar séu „vaxtartækifæri felast í lagareldi, bæði í sjó og á landi. Sú starfsemi fellur vel að markmiðum atvinnustefnunnar um aukna framleiðni, fjölbreyttari útflutning og vöxt í öllum landshlutum. Lögð er áhersla á að skapa skilyrði til að undirbyggja öflugan og sjálfbæran vöxt í þessum geira.“

„Forgangsverkefnið felur í sér margvíslegar umbætur á umgjörð […] sjávarútvegs og lagareldis með það að markmiði að styðja við kröftuga verðmætasköpun með einfaldri stjórnsýslu og gjaldtöku sem nýtist við uppbyggingu og álagsstýringu. […] Þá kallar ör vöxtur lagareldis á verulegar umbætur í umhverfi [þess] svo greinarnar megi vaxa áfram í sátt við umhverfi og samfélag.“

Nú liggur fyrir að staða lagareldis er gríðarlega erfið. Hún er í raun hættulega erfið. Þetta er m.a. tilkomið vegna óraunhæfrar gjaldtöku á undanförnum árum af greininni sem er í miklum uppbyggingarfasa. Það er gríðarlega mikil fjárfestingarþörf fyrirliggjandi, ekki síst ef þetta á að kallast á við stefnu stjórnvalda í atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun næstu ára þar sem lagareldið er hugsað til þess að vera sú atvinnugrein sem mun bera aukinn hagvöxt og aukin tækifæri, vera burðarásinn í þeirri stefnu. Ef við ætlum að komast áfram í þessu þá þarf erlent fjármagn. Við erum í mjög harðri baráttu við önnur lönd um erlenda fjárfestingu og erum engan veginn samkeppnisfær þegar kemur að gjaldtöku. Nú erum við með mál fyrir þinginu. Það má segja að það sé nokkuð víðtæk sátt um það almennt séð í stjórnmálum að efla vöxt þessarar greinar en það stendur í mönnum að þrátt fyrir lækkun á þeim gjöldum sem fyrir eru, það á að lækka þau þó nokkuð, þá dugar það ekki til að laða hingað það fjármagn sem nauðsynlegt (Forseti hringir.) er til að efla uppbygginguna, hvað þá bara að ná því inn í þann rekstur sem þegar er til staðar.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún muni ekki leggjast á sveif með okkur (Forseti hringir.) að gera þær breytingar á þessu frumvarpi þannig að greinarnar sem við ætlum að byggja arðsemi og hagvöxt hér á næstu árum í íslensku atvinnulífi(Forseti hringir.) séu samkeppnisfærar þegar kemur að því að laða að erlenda fjárfestingu í greininni.