gjaldtaka í lagareldi og staða þess.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir góða fyrirspurn. Það er rétt að í atvinnustefnu stjórnvalda er lögð áhersla á tilteknar verðmætaskapandi atvinnugreinar. Lagareldið er þar á blaði og það er með það að markmiði sem þetta víðtæka frumvarp var lagt fram núna í vetur og er á lokametrunum, vona ég, í meðförum þingsins. Þar er auðvitað gripið til tiltekinna mjög mikilvægra ráðstafana þegar kemur að umhverfisvernd og dýravelferð en þar hefur verið pottur brotinn í starfseminni eins og við öll þekkjum undanfarin ár. Þar eru líka settir í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar ákveðnir fjárhagslegir hvatar þegar kemur að því að ýta sjókvíaeldinu út í lokaðar kvíar og ófrjóa fiska. En eftir stendur sú staðreynd að eftir brösugan rekstur undanfarin ár og þær óheppilegu skattahækkanir sem síðasta ríkisstjórn stóð fyrir, ekki einu sinni heldur tvisvar, er reksturinn þungur. Í landeldinu er síðan fyrirliggjandi gríðarleg fjárfestingarþörf en við getum kannski tekið það út fyrir sviga í þessari tilteknu fyrirspurn hv. þingmanns af því að við erum sennilega að tala um framleiðslugjaldið sem leggst á sjókvíaeldið, í ljósi þess að þar er um að ræða rekstur sem hvílir á takmörkuðum auðlindum, þ.e. aðstöðu í fjörðunum okkar. Þetta er í meðförum þingsins núna. Í frumvarpinu er gjaldið lækkað um 40% frá því sem núgildandi lög segja fyrir um og ef ég skil þetta rétt þá er tekist á um það í meðförum þingsins hvort sú lækkun sé næg eða hvort ganga þurfi lengra. Ég er bara ekki með stöðuna nákvæmlega á hreinu.
Mitt stóra markmið, og það ætti að vera hjá okkur öllum, er að tryggja þessa umgjörð þannig að lagareldi, hvort sem er sjókvíaeldi eða landeldi, eða ef við náum að fara út í hafeldi sem er líka byggt undir í þessu frumvarpi, geti vaxið í sátt við náttúruna og samfélagið okkar (Forseti hringir.) og að gjaldtöku sé stillt í hóf. Það er markmiðið með þessu frumvarpi. En eins og ég segi, það er síðan verið að ræða hvort nægilega langt sé gengið.