gjaldtaka í lagareldi og staða þess.
Virðulegi forseti. Já, já, skattahækkanirnar voru of miklar á síðasta kjörtímabili, það er alveg ljóst. Við erum núna sammála um það í þinginu að gera þessa grein eina af burðarstoðunum í íslensku atvinnulífi, þá grein sem á að vaxa hraðast og vera grunnur að því að efla lífskjör og lífsgæði. Það er gríðarleg fjárfestingarþörf, ekki bara í landeldinu heldur einnig í sjókvíaeldinu, ekki síst í því að tryggja einmitt öryggi framleiðslunnar. Það kallar á miklar fjárfestingar að berjast við lús og aðrar erfiðar aðstæður. Það er komin tækni til að takast á við þessi verkefni en það kostar mikið að fjárfesta í henni. Það stendur til samkvæmt frumvarpinu að leggja 25 kr. framleiðslugjald á kílóið. Það er 12 kr. í Noregi. Þeir sem starfa í þessari grein segja að þetta þurfi að fara niður í 15 kr. ef við eigum að fá forgang frá fjárfestum í þessum geira til þess að koma hér að málum. Það er ljóst að fjármagn hér innan lands er takmarkað og við erum í samkeppni við erlent fjármagn, erlenda fjárfestingu. Mér finnst ráðherrann skila auðu þegar hún segir að þetta sé bara algerlega á ábyrgð þingsins. Auðvitað vitum við að þetta er í ákveðnu samspili við fjármálaáætlun sem liggur einnig fyrir þinginu þar sem mjög þröngur stakkur er sniðinn. Við erum að berjast við það að koma þessu niður í samkeppnishæfa tölu.
Ég er að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún muni ekki ásamt ríkisstjórninni leggja áherslu á það við meiri hluta þingsins, þá sem fara með þessi mál núna, að það geti orðið um þetta víðtækari sátt þannig að við getum klárað þetta mál í nokkuð víðtækri samstöðu í þinginu og greinin geti farið að láta til sín taka og kallast á við áform ríkisstjórnarinnar í atvinnustefnu hennar.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður forláts á því að það er ekki samræmi í tímasetningum hérna og það gerðist óvart að hv. þingmaður fékk of mikinn tíma.)