gjaldtaka í lagareldi og staða þess.
Frú forseti. Þetta er áhugavert umræðuefni og ég stend hér og leyfi mér að fyrirgefa hæstv. forseta það, fín fyrirspurn. Við erum ekkert ósammála, hv. þingmaður, um markmiðið hér enda er þetta frumvarp risaskref í þá átt að búa til mikilvæga umgjörð um þessa atvinnugrein þannig að hún geti vaxið og dafnað. Þegar kemur að alþjóðlegum samanburði eða samanburði við Noreg þá þarf að hafa þar lykilhugtak; það eru sérstök auðlindagjöld til viðbótar við þetta krónugjald á þorskinn. Það kostar, það er farið í útboð, leyfin kosta. Þannig að samanburður, og ég þekki hann býsna vel vegna þess að við lágum yfir þessu þegar við unnum frumvörpin, er ekki íslenskum fiskeldisfyrirtækjum í óhag. En samsetningin er ólík.
Þegar kemur að þessum 25 kr. per kíló, sem eru 45 kr. núna, þá er líka í frumvarpinu verið að tala um ákveðinn afslátt af því gjaldi með tilliti til náttúruverndarsjónarmiða, þ.e. það fer eftir tíma í sjó. Ég get því ekki samþykkt það að ég skili auðu í þessari vinnu. En að sama skapi stend ég auðvitað ekki hér (Forseti hringir.) og lýsi því yfir að ég ætli að grípa inn í vinnu þingsins. Það veit hv. þingmaður sannarlega vel að ég get ekki gert. En ég get staðfest það að ég hef allan hug á því að það sé búið svo um hnútana að þessi grein vaxi og dafni í sátt (Forseti hringir.) við umhverfið og í sátt við samfélagið. Það er sameiginlegt markmið okkar og það gleður mig að heyra að það er þannig.