157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

viðbrögð atvinnuvegaráðuneytis vegna erindis Hvals hf.

[10:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Margir í atvinnulífinu hafa furðað sig á því sem á köflum virðist helst vera hægt að lýsa sem hatri eða fyrirlitningu ríkisstjórnarinnar á tilteknum atvinnugreinum.

(Forseti (ÞSv): Hatri og fyrirlitningu.)

Já, það þarf ekki annað en að huga að orðum hæstv. atvinnuvegaráðherra í garð sjávarútvegsins á síðasta þingi og afkomu þar.

En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í eru einhliða bréfaskrif fyrirtækis hér í bæ sem heitir Hvalur varðandi nýtingu aukaafurða sjávarspendýra sem kerfið uppáleggur fyrirtækinu að vinna en gerir því síðan því sem næst ómögulegt að selja. Nú eru að verða liðnir níu mánuðir síðan þessi einhliða skrif hófust þar sem Hvalur hefur, með býsna sterkum rökstuðningi og hvatningu, hvatt til þess að gullhúðun Evrópureglna sé aflögð. Þetta byrjar í október og er síðan samfellt síðan þá, bæði umsagnir í samráðsgátt, bein bréfaskrift til ráðuneytis og spurningar, allt kurteislega fram sett en einhvern veginn tekur steininn úr á endanum og eftir situr spurningin: Er þetta einhver fyrirlitning á löglegri atvinnustarfsemi sem orsakar að það er bara beinlínis ekki brugðist við neinu þannig að fari að halla í ár? Er þetta eitthvað sem varðar ESB-áhrif eða -friðþægingu eða er þetta bara eitthvert sleifarlag inni í ráðuneytinu? Það væri sennilega skást af þessum þremur valkostum. En ég verð að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað veldur því að ferðaþjónustan rekur upp harmakvein reglulega vegna samskipta við stjórnvöld, sjávarútvegurinn, lagareldið nú um stundir, veiðiréttarhafar líka? Það er eiginlega sama hvert er litið. Hæstv. ráðherra, hvað orsakar það að fyrirtæki sem hefur stundað hér löglega atvinnustarfsemi áratugum saman er ekki svarað í níu mánuði?