viðbrögð atvinnuvegaráðuneytis vegna erindis Hvals hf.
Hv. þingmaður. Það er býsna merkilegt að …(Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Forseti vill benda bæði hæstv. ráðherrum og hv. þingmanni á að ávallt ber að ávarpa forseta.)
Frú forseti. Það er áhugavert að heyra hv. þingmenn skella sér á bólakaf ofan í þann drullupoll sem Íslandsmetið í málþófi um leiðréttingu á veiðigjöldum var og kalla þetta hatur hæstv. atvinnuvegaráðherra á atvinnulífinu. Ég hélt að menn hefðu lært sína lexíu á þeirri snautlegu vegferð sem stjórnarandstaðan var í þá. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður hóf sína ræðu á því og ég skil vel að það skuli vera viðkvæmt að ég svari því. En þannig er það nú samt og ég áskil mér leyfi til þess.
Hvað varðar hvalveiðar þá er staðan einfaldlega sú að það er í gildi rekstrarleyfi. Það er í gildi reglugerð þannig að fyrirtækinu Hval hf. er ekkert að vanbúnaði að halda til hvalveiða, hyggist það gera svo. Hvað varðar þær breytingar sem fyrirtækið hefur óskað eftir, breytingar á matvælalöggjöf, sennilega til þess að auka möguleikana á að nýta þessa afurð, sem mér skilst að um árabil hafi ekki tekist að selja, þá er verið að skoða það erindi í ráðuneytinu og ég veit ekki nákvæmlega hvar það er statt. Svo einfalt er það.
En í alvöru — ég skil frústrasjón stjórnarandstöðunnar hér á þingi en að fara hingað upp í pontu og brigsla stjórnvöldum um hatur á atvinnulífinu er svo fyrir neðan allar hellur að það kemur meira að segja á óvart úr ranni hv. þingmanns.