viðbrögð atvinnuvegaráðuneytis vegna erindis Hvals hf.
Frú forseti. Það verður gaman í sumar að taka saman orð hæstv. ráðherra í garð sjávarútvegsins þó að ég hafi ekki verið að vísa til umræðunnar í heild sinni sem átti sér stað hér í þinginu á síðasta þingvetri. Það breytir því ekki að samkvæmt stjórnsýslulögum ber ráðuneyti að bregðast við erindum, fyrirspurnum og öðru þvíumlíku sem til ráðuneytis eru send. Ég verð að spyrja hæstv. ráðherra: Það að engin viðbrögð hafa borist í hartnær níu mánuði með nokkrum hætti, er þetta alsiða í ráðuneytinu að erindi séu afgreidd með þessum hætti? Eða á þetta fyrst og fremst við um erindi frá Hval hf.?