157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

viðbrögð atvinnuvegaráðuneytis vegna erindis Hvals hf.

[11:02]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ef hv. þingmaður er að spyrja um það hvort í ráðuneytinu sé erindum forgangsraðað eftir því hvaða skoðun ráðherra eða einstaka starfsmenn hafa á þeim sem erindi senda inn þá er svarið nei, það er ekki þannig. Það er hins vegar staðreynd að í þessu ráðuneyti, sennilega sem og mörgum öðrum, eru verkefnin mörg og þau eru fjölbreytt og okkur er þröngur stakkur skorinn. Það er verið núna að skoða þessa reglugerð. Hún er ekki einföld. Það eru vissulega í gangi sameiginlegar reglur um innflutning á hvölum eða öðrum hvalaafurðum sem þarf að skoða inn til Evrópusambandsins og vörur sem unnar eru úr þeim. Tafirnar lúta að því að það er verið að skoða hvaða leiðir eru færar í þessu máli. En það er hins vegar ekki alrangt að níu mánuðir eru býsna langur tími. Ég mun taka það með mér og við munum ýta á eftir þessu máli eins og kostur er í ráðuneytinu. (Forseti hringir.) En það hefur einfaldlega dregist að svara vegna anna.