lokuð búsetuúrræði og vistun barna í brottfararstöð.
Frú forseti. Þann 4. mars árið 2024 sagði núverandi hæstv. utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar í ræðu á Alþingi, með leyfi forseta:
„Línan sem við í Viðreisn drögum í sandinn er að við setjum ekki börn í lokað búsetuúrræði. Þar er línan sem ég dreg í sandinn.“
Þetta voru afdráttarlaus og ansi skýr skilaboð til þjóðarinnar og ekki aðeins persónuleg skoðun þáverandi hv. þingmanns heldur yfirlýst stefna flokks sem þá sat í stjórnarandstöðu. Nú hefur Alþingi hins vegar til meðferðar frumvarp dómsmálaráðherra úr röðum Viðreisnar um brottfararstöð þar sem gert er ráð fyrir að fjölskyldur með börn geti sætt vistun í lokuðu úrræði. Fjölmargir umsagnaraðilar hafa bent á að frumvarpið feli í sér frelsissviptingu barna og að slíkt samrýmist illa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mér finnst mikilvægt, frú forseti, að við fáum svar við því hvað hefur breyst frá því að formaður Viðreisnar lýsti því yfir á Alþingi árið 2024 að flokkurinn myndi ekki setja börn í lokað búsetuúrræði þar til nú þegar ráðherra úr sama flokki leggur fram frumvarp sem heimilar vistun barna í brottfararstöð.
Frú forseti. Þegar stjórnmálaflokkur segir þjóðinni að hann muni ekki setja börn í lokað úrræði en leggur síðan fram frumvarp sem margir sérfræðingar segja að feli í sér frelsissviptingu barna er eðlilegt að spyrja hvort stefna flokksins hafi breyst.