lokuð búsetuúrræði og vistun barna í brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég er enn þeirrar skoðunar að við eigum alltaf að huga að hagsmunum barna hvar sem er og hvenær sem er. Þegar þetta var á sínum tíma til umræðu, undir ríkisstjórn sem hv. þingmaður studdi, þá var verið að tala um m.a. móttöku á flóttafólki og móttöku útlendinga og að það ætti að setja þau öll inn tímabundið í lokað úrræði. Ég sagði þá, að mínu mati réttilega, að það yrði að draga þá línu í sandinn að við myndum ekki gera þetta og hrúga öllu fólki saman þarna inn. Er verið að gera það núna? Nei, því að sem betur fer hefur málið tekið breytingum frá því að það var lagt fram af hálfu dómsmálaráðherra að því leytinu til að það er búið að skerpa á því með tilliti til þeirra athugasemda. Ég tel mikilvægt að draga það fram að mér finnast skipta máli þær athugasemdir sem koma fram af hálfu ýmissa samtaka, hvort sem þau kenna sig við Barnaheill, UNICEF eða önnur. Það finnast mér vera mjög dýrmætar ábendingar og athugasemdir. Mér finnst líka gott að sjá að þingið er að taka tillit til þeirra ábendinga og athugasemda af því að ég hef ekkert breytt frá þeirri skoðun minni, sem ég lýsti á sínum tíma, að mér finnst það erfitt. En um leið þá vil ég líka draga það fram að nefndin og þingið eru búin að koma verulega til móts við nákvæmlega þær ábendingar sem hafa verið settar fram og það er einmitt verið að reyna að gæta sérstaklega að börnum. En ég vil líka draga það fram, eins og hefur komið fram í nefndarálitinu, að þessi brottfararstöð er algerlega til þrautavara og börnin eru ekki sett þar inn heldur á annan stað þar sem þeim er mun betur sinnt. Þetta er líka úrræði sem tekur mjög skamman tíma (Forseti hringir.) og er, eins og ég segi, algjörlega til þrautavara ef fólk vill ekki hlíta fyrirmælum yfirvalda.