157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

lokuð búsetuúrræði og vistun barna í brottfararstöð.

[11:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef fullan skilning á því að stjórnvöld og yfirvöld standi stundum frammi fyrir erfiðum aðstæðum en spurningin snýr samt sem áður að börnunum, hvort það sé rétt að frelsissvipta börn algerlega óháð aðstæðum vegna ákvarðana foreldra þeirra. Hér er hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja til að við séum að frelsissvipta börn, tölum bara skýrt, hreint og heiðarlega um þetta. Hæstv. ráðherra í stjórnarandstöðu fullyrti hér að Viðreisn myndi draga strik í sandinn, það yrði ekki farið í frelsissviptingu á börnum. En nú er ráðherra úr viðkomandi flokki að leggja fram frumvarp sem gengur einmitt út á það að frelsissvipta börn og algerlega óháð því að þetta sé þrautalending þá er þetta samt niðurstaðan: Börnin lúta frelsissviptingu. Getur hæstv. ráðherra upplýst þingheim (Forseti hringir.) og landsmenn um það hvernig frumvarp um brottfararstöð samræmist þeim orðum sem hæstv. ráðherra sagði hér í þingsal árið 2024?