lokuð búsetuúrræði og vistun barna í brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp hefur náttúrlega, frá ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, tekið stórstígum breytingum. Það er ekki um búsetuúrræði hér að ræða en ég get tekið undir að það sem skiptir máli er að við Íslendingar séum ekki með sérreglur sem eru þannig að þær opni fyrir ákveðna hópa, ekki síst ákveðna glæpahópa sem við vitum til að nota sér séríslenskar aðstæður. Það er ekki hægt að segja að þetta sé nákvæmlega það sama og var lagt upp með áður. Ég tek enn undir það og dreg það fram að á sínum tíma, miðað við þau lög sem eru núna, var hægt að skilja börn frá foreldrum en samningar m.a. Sameinuðu þjóðanna mæla gegn því að börn séu aðskilin frá foreldrum eins og núverandi fyrirkomulag er hér á Íslandi. Það sem er verið að gera er að tryggja að börnin geti verið áfram í mannúðlegra umhverfi með foreldrum sínum (Forseti hringir.) meðan þetta ferli gengur yfir og ég undirstrika að það er um algjört sérúrræði að ræða. Þetta er í afar fáum tilvikum. (Forseti hringir.) Ég vil líka draga það fram að það verður gerð úttekt á þessu að ári eftir því hvernig þetta muni nýtast. En ég undirstrika að ég vil taka undir það sem hefur komið fram í athugasemdum varðandi börnin, (Forseti hringir.) þetta er eitthvað sem við verðum að hafa í huga og það hefur m.a. hv. allsherjar- og menntamálanefnd tekið sérstaklega til sín og lagt til breytingar þar.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir enn og aftur á að ráðherrum og þingmönnum ber að virða ræðutímann.)