157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[11:12]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er verið að fleyta áfram máli sem felur það í sér að Ísland byrjar að taka upp hluta nýs verndarsamkomulags Evrópusambandsins, þá hluta til að byrja með sem við erum skuldbundin til samkvæmt okkar alþjóðlegu skuldbindingum. Í greinargerð frumvarpsins er hins vegar gefinn ákveðinn ádráttur um að í framhaldinu verði skoðaðir þeir hlutar sem við erum ekki skuldbundin til, þ.e. aðrir hlutar verndarsamkomulags Evrópusambandsins. Þessir hlutar eru margir sannarlega þannig vaxnir að jafnvel þingmenn stjórnar hafa lýst því að þeir henti líklega ekki hagsmunum Íslands og þess vegna fer ég þess hér formlega á leit að þetta mál verði tekið til frekari umræðu á milli 2. og 3. umræðu inn í allsherjarnefnd. Þar verði skerpt á því að með því að samþykkja þetta sé engan veginn verið að hefja frekari aðlögun að verndarsamkomulagi Evrópusambandsins.