útlendingar og lögreglulög.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um þann hluta heildarsamkomulags Evrópusambandsins sem er hluti af Schengen-samkomulaginu sem við erum aðili að. Hér erum við að styrkja landamærin okkar. Við erum að efla eftirlit. Við erum að framlengja svokallað Dyflinnarákvæði og ef við samþykkjum þetta ekki, ef við t.d. samþykkjum tillögu 1. minni hluta um að vísa þessu til ríkisstjórnar, þá falla niður heimildir okkar um að geta endursent flóttafólk sem hingað kemur og hefur sótt um hæli annars staðar. Því er afar óábyrgt að samþykkja þá tillögu og mikilvægt að við klárum þetta mál fyrir sumarhlé. Það er afar mikilvægt og það kemur skýrt fram í nefndaráliti að við erum aðeins að innleiða þann hluta verndarsamkomulagsins sem hér er kveðið á um en ekki aðra hluta. Sú setning sem hv. þm. Snorri Másson vísaði til, segir einfaldlega: Aðrir hlutar þessa samkomulags verða skoðaðir út frá hagsmunum Íslands. Í þessu verndarsamkomulagi eru fjölmargir þættir og ef einhver þeirra hentar hagsmunum Íslands þá stendur í greinargerð frumvarpsins að þeir verði skoðaðir ef þeir henta hagsmunum Íslands, annars ekki.