útlendingar og lögreglulög.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson lýsti því ágætlega hver staðan er í þinginu núna. Hér kemur ríkisstjórnin með mál sem forsvarsmenn málsins skilja ekki alveg, eru ekki búnir að undirbúa nógu vel og þetta tengist því alþjóðlega samstarfi sem við erum í. Við ákváðum sjálf að fara í Schengen. Við þurftum ekki að gera það. Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir var að benda á hvað það myndi þýða ef við værum í Evrópusambandinu. Það sem er óþægilegt, virðulegi forseti, ekki bara þegar snýr að þessu máli heldur mörgum öðrum, t.d. grundvallarmálum eins og fjármálaáætlun og innviðafélagi, er að það virðist vera að ESB-stjórn Kristrúnar Frostadóttur sé bara með augun á einu máli, hún er bara með augun á einu máli, þ.e. að koma okkur inn í ESB, sama hvað það kostar. Hér erum við með gríðarlega stór mál undir þar sem er orðin almenn regla að hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) hefur ekki unnið heimavinnuna. — Virðulegi forseti gefur mér ekki ráðherratíma, það er augljóst. — Það er bara alvarlegt fyrir íslenska þjóð.