útlendingar og lögreglulög.
Virðulegur forseti. Mér heyrist hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson ekki hafa hlustað hér almennilega á umræður í þingsal þar sem það var nú boðað í þessu sambandi að í þeirri vinnu sem allsherjarnefnd færi vonandi í yrði frávísunartillagan afturkölluð. Það er auðvitað ábyrgt að afgreiða þetta í tæka tíð en ég bendi á að tímapressan í þessu máli, þar sem okkur eru settir þeir afarkostir að taka þetta upp ella falli Dyflinnarreglugerðin brott. Tímapressan sem er í kringum það er ekki á ábyrgð okkar í stjórnarandstöðunni heldur stjórnar sem kemur með þetta mál svona seint hingað inn. Menn skyldu hafa það í huga áður en þeir saka aðra um að ætla að láta skeika að sköpuðu með þetta sem var ekki stefna okkar, enda gætum við vel að ábyrgð okkar á þessu sviði. Hins vegar er það fullkomlega eðlilegt að gera við það mikla fyrirvara þegar ríkisstjórn sem ætlar með þjóðina inn í Evrópusambandið byrjar að innleiða í smáskömmtum verndarsamkomulag Evrópusambandsins þegar Evrópusambandið hefur ekki fagra sögu að segja á sviði hælismála á síðustu áratugum. Þótt Evrópusambandið boði (Forseti hringir.) ýmislegt fallegt þessa dagana hefur ekkert slíkt komið til framkvæmda eða orðið ljóst að þar séu málin virkilega að þróast til batnaðar.
(Forseti (ÞSv): Skildi forseti þingmanninn rétt, að hann hyggist afturkalla breytingartillögu um afturköllun? (SMás: Já, þann þátt í nefndarálitinu. En þú getur … ) )