157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[11:22]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil nú bara koma hingað upp og fara yfir það í stuttu máli út á hvað þetta gengur. Það er þannig að í nokkuð mörg ár hefur Dyflinnarreglugerðin verið hér í gildi og það sem fólk hér inni veit er að Dyflinnarreglugerðin varðar það hvaða ríki bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd. Með breytingunni verður til önnur reglugerð sem er vísað til sem AMMR-reglugerðar og hefur raunverulega sama tilgang, þ.e. að það sé ljóst hvaða land ber ábyrgð á umsókninni. Jafnframt er þar um að ræða betri málsmeðferðarreglur og styttri málsmeðferðartíma.

Svo vil ég bara leyfa mér að taka undir með hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni varðandi annað í þessu verndarsamkomulagi sem ekki stendur til að taka upp, annað en það sem okkur ber og eftir atvikum það sem varðar okkar hagsmuni. Það er grundvallaratriði og kæmi auðvitað hér til umræðu í þinginu nákvæmlega eins og þetta er að koma til umræðu í þinginu nú.