157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:27]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér gríðarlega mikilvægt mál sem snýr að því sem ég fullyrði að full samstaða er um meðal þingheims; að búa til tæki sem mun hjálpa okkur við að fara í stórar framkvæmdir sem full þörf er á. Að því leytinu til er þetta mjög jákvætt mál. Aftur á móti hefur komið í ljós við umfjöllun nefndarinnar að þeir sem stýra málum hjá ríkisstjórnarmeirihlutanum hafa misskilið málið, ef málið er eins og við höldum að það sé út frá fundum með sérfræðingum utan hefðbundinna þingstarfa. Einhver kynni að segja: Skiptir það einhverju máli ef niðurstaðan er sú sama? Jú, virðulegur forseti, það skiptir öllu máli. Það er mjög erfitt fyrir okkur að samþykkja einhver mál sem menn vita ekki hvað þýða. Þó að ásetningurinn sé góður þá erum við, virðulegi forseti, ef við lesum meirihlutaálit nefndarinnar, sem er lögskýringargagn, og ef meirihlutaálitið er rétt, að samþykkja eitthvað sem mun ekki nýtast okkur í þessu verkefni. Svo einfalt er það. Með leyfi forseta segir á bls. 3 í meirihlutaálitinu:

„Meiri hlutinn leggur áherslu á gagnsæi í reikningshaldi félagsins þannig að samband veggjalda og tiltekinnar samgönguframkvæmdar sé ljóst. Það mætti t.d. gera með stofnun dótturfélaga um hverja framkvæmd fyrir sig eins og nefnt er í greinargerð með frumvarpinu og í umsögn lífeyrissjóða. Slíkt fyrirkomulag ætti líka að tryggja að veggjald flokkist ekki sem skattur heldur sem þjónustugjald. Kostnaðartengslin ættu að tryggja að efnisleg tenging verði á milli gjaldskyldunnar og þeirrar þjónustu sem notandinn fær.“

Virðulegi forseti. Ef þetta er niðurstaðan þá erum við ekki hér að samþykkja innviðafélög eins og þau sem við höfum verið að líta til þegar litið hefur verið til fyrirmynda, svo einfalt er það. Þetta myndi þýða að hver framkvæmd fyrir sig þyrfti að standa undir sér með þjónustugjöldum en ekki mætti fara neitt umfram það. Fram hefur komið að þannig vinna menn ekki með þessi innviðafélög sem bent hefur verið á sem fyrirmyndir. Þar er gjaldið hreinlega þannig að ekki er um hefðbundið þjónustugjald að ræða heldur er heimild fyrir því að menn safni eigin fé í móðurfélaginu, þ.e. innviðafélaginu, og taki saman nokkrar framkvæmdir í einu með mismunandi arðsemi. Er þetta eitthvert mál? Já, þetta er risamál og kjarni málsins. Það er orðin algjör regla hjá þessari ESB-ríkisstjórn að vinna engin önnur mál en að reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið með góðu eða illu. Það er bara staðreynd máls.

Annað dæmi er það að ef við skoðum meirihlutaálit umhverfis- og samgöngunefndar um samgönguáætlun þá er tilgreint sérstaklega hvaða verkefni eigi að fara í innviðafélagið. Á suðursvæðinu er talað um Markarfljót – Þjórsá, Þjórsá – Selfoss og Varmá – Kamba, á höfuðborgarsvæðinu Hólmsá – Bæjarháls og um Kjalarnes, á vestursvæði Akrafjallsveg – Borgarness og síðan um Borgarnes, og á norðursvæði Þelamörk – Akureyri. Í álitinu segir að það sé ekki hægt að setja verkefni inn í innviðafélagið nema til staðar sé hjáleið. Það þýðir t.d. að Kjalarnesvegur getur ekki farið í innviðafélagið en hér hafa hv. þingmenn stjórnarliðsins talað um það sem gott dæmi að setja Kjalarnesveginn í innviðafélagið og losa þar af leiðandi um 6,3 milljarða, að fólk myndi greiða veggjöld um þann veg sem hægt yrði að nýta annars staðar.

Virðulegur forseti. Hvaða hjáleið er um Kjalarnesveg? Það er fullkomlega skiljanlegt að þingmenn þekki ekki alla vegi á Íslandi en við þekkjum öll Kjalarnesveg. Ef við ætlum að keyra á Akranes, í Borgarfjörðinn eða norður í land frá Reykjavík, hvaða hjáleið getum við farið ef við ætlum ekki að fara Kjalarnesveginn? Það er hægt að fara hinn hringinn en það er svolítið langt. Ég fullyrði að það sé ekki skilgreint sem hjáleið. Þótt fallegt sé að keyra hringveginn í góðu veðri þá er hann held ég 1400 km, ef ég man rétt, og getur það ekki verið hjáleið. Sama með Þelamörk og Akureyri, hvaða hjáleið er þar? Er það einhvern tímann þannig þegar menn fara frá Þelamörk til Akureyrar að þeir hugsi: Best að fara hina leiðina? Nei, virðulegur forseti, það væri þá hringvegurinn. Þetta bara liggur fyrir.

Virðulegi forseti. Þetta er það sem við horfum á. Ég get líka nefnt Akrafjallsveginn og Borgarnes. Hjáleiðin þar er mjög langsótt og held ég að hún uppfylli ekki skilyrði. Kannski gerir hún það en svo sannarlega ekki leiðin um Þelamörk og Akureyri, sannarlega ekki leiðin um Kjalarnes og ég held að leiðin Varmá – Kambar, milli Selfoss og Hveragerðis, sé ekki með skilgreinda hjáleið. Í það minnsta væri hún frekar löng en kannski geta menn náð niðurstöðu. Áhugavert væri að sjá þær hjáleiðir sem eru um Þjórsá – Selfoss og Markarfljót – Þjórsá.

Því er stórmál ef samþykkja á mál sem stjórnarmeirihlutinn misskilur, sem kemur fram í það minnsta í tveimur nefndarálitum. Þetta er mál sem verður að vera í lagi og ég skal viðurkenna að eina skiptið sem manni leið eins og maður væri alla vega farinn að skilja hvað væri verið að fara var þegar við heyrðum í og fengum á fund okkar, og ég veit að allir stjórnarandstöðuflokkarnir gerðu það sitt í hvoru lagi, þá sérfræðinga sem hafa unnið málið með ráðuneytinu. Þá kom bara fram allt annað mál en það sem við fengum kynningu á í nefndinni. Hv. fjárlaganefnd gerði vel í því að kalla til umsagnaraðila og fór ekki á milli mála að þeir voru allir sammála um að þeir skildu ekki alveg málið. Þeir voru að leggja út frá því sem þeir héldu að það væri, sem er augljóslega ekki niðurstaðan. Alla jafna í þingstörfum, þangað til að þessi ríkisstjórn tók við, fóru þingnefndir í dýptina á málum og reyndu að ná samstöðu og í það minnsta alltaf sameiginlegum skilningi þannig að hv. þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu væru sammála um það sem þeir væru ósammála um. Í þessu tilfelli, eins og virðist vera orðin almenn regla hjá ríkisstjórninni, var það ekki raunin.

Áhyggjur mínar af stjórn landsins fara vaxandi með hverjum deginum. Í hv. fjárlaganefnd vorum við að taka út fjármálaáætlun þar sem allar forsendur eru brostnar. Skrifað er út í meirihlutaáliti og hreinlega sagt að þessi milljarður sem menn ætluðu að hafa í afgang á næsta ári sé farinn af því að menn breyttu styttingu tímabils atvinnuleysisbóta með þeim hætti að í hana fóru 1,2 milljarðar sem áttu að sparast. Í ofanálag, og fjármálaáætlun byggir á spá Seðlabankans, liggur fyrir að atvinnuleysi verður mun meira sem mun þýða viðbótarkostnað upp á 7 milljarða og sömuleiðis verður hagvaxtarspáin verri. Engin tala er þar á en við vitum að þar gæti munað alla vega tug eða tugum milljarða. Almenna reglan er sú þegar svona lagað kemur upp, og til þess er hv. fjárlaganefnd að fara yfir fjármálaáætlun, að menn gera tillögur að breytingum á fjármálaáætlun þegar forsendur fjármálaáætlunar standast ekki. Áætlunin stenst ekki. Í ofanálag er ekkert vikið að gagnrýni þess fagaðila sem á að rýna fjármálaáætlunina en þá er ég sérstaklega að vísa til fjármálaráðs. Lögum samkvæmt leggja þrír sérfræðingar mat sitt á hana og gerðu þeir að mig minnir 13 eða 14 athugasemdir, mjög alvarlegar. Ein var þó jákvæð, að fjárlög yrðu hallalaus, en augljóst er að öllu óbreyttu að svo verður ekki.

Virðulegi forseti. Af hverju nefni ég þetta? Vegna þess að það er orðin algjör regla að það virðist ekki ætla að vera nein samstaða í ríkisstjórninni um nein mál sem skipta máli fyrir þjóðina. Það eina sem ríkisstjórnin ætlar að gera er að koma okkur inn í Evrópusambandið með góðu eða illu. Það eru ótrúlega slæmar fréttir fyrir þjóðina og er ótrúlega vont, virðulegi forseti, að við séum á síðustu dögum þingsins ekki komin lengra með innviðafélagið en raun ber vitni. Okkar tillaga er sú að ríkisstjórnin fái málið aftur og klári það. Ég tel skynsamlegt að hittast aftur í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að klára málið. Samstaða er um innviðafélag en við verðum að vita hvað felst í því. Við höfum ekki neitt annað en ræður, nefndarálit og lagatexta til að vinna út frá. Þegar við lesum það allt er augljóst að meiri hlutinn skilur ekki málið. Það er augljóst að Kjalarnesvegur getur ekki farið í innviðafélagið með þeim hætti að þar verði tekin þjónustugjöld eða veggjöld. Það er augljóst að engin hjáleið er um Kjalarnesveg, virðulegi forseti. Það veit hvert einasta mannsbarn.

Virðulegur forseti. Þingmeirihlutinn verður að sýna ábyrgð í þessu máli. Meiri hlutinn getur ekki teflt í tvísýnu þessu risastóra máli. Ríkisstjórnarmeirihlutinn er í þeirri öfundsverðu stöðu að vera með mál sem á að vera mjög góð samstaða um að því gefnu að skýrt sé hvað er á ferðinni og hvernig menn ætla að framkvæma það. Ég er ekki kominn í þá hluti sem við höfum lítið rætt og sannarlega ekki í nefndinni, þ.e. hvernig aðkoma kjörinna fulltrúa eigi að vera. Við þekkjum vítin til að varast. Í hv. fjárlaganefnd fengum við kynningu um félagið Betri samgöngur sem er einhvern veginn á sporbaug í kringum jörðu og enginn kannast við ábyrgð þar. Það er að vinna allrahanda mál sem tengjast öllum landsmönnum, þá sérstaklega í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. Miðað við þær breytingartillögur sem hér eru ætla menn að fara sömu leið og þegar kemur að Betri samgöngum. Ég hvet hv. þingmenn í öllum flokkum til að hugsa aðeins hvernig það verður ef lýðræðisleg aðkoma að þeim málum verður ekki meiri en meiri hlutinn leggur upp með.