157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir prýðilega ræðu og fagna því að í henni kom skýrt fram að býsna breið sátt sé um að koma á laggirnar innviðafélagi sem geti farið þessar nýju leiðir við að fjármagna, flýta og koma í verk mikilvægum samgöngumannvirkjum og skapað þannig svigrúm á samgönguáætlun fyrir önnur verkefni. Verkefni innviðafélagsins verða auðvitað stór, mörg og mikilvæg ef vel gengur, sem við vonum öll.

Hér hafa komið upp vangaveltur varðandi greiningu á einstökum verkefnum. Kjalarnes er nefnt og þeirri greiningu er ekki lokið, hún er ekki hafin. Við erum ekki búin að stofna innviðafélagið. Fara þarf yfir nokkur meginprinsipp þar, m.a. varðandi hjáleið eins og þingmaðurinn nefnir. Í einhverjum tilvikum hefur verið farin sú leið að verkefni eru hnýtt saman sem í raun eitt samgöngukerfi á tilteknu svæði og fjármögnuð sem ein heild. Ég ætla ekki að fullyrða að það geti átt við um Kjalarnesið en það getur átt við í einhverjum tilvikum og frumvarpið á að veita svigrúm fyrir því. Komið hafa upp álitamál um það hvort gjaldtökuheimildin eigi að vera tengd við vegalög eða vera sjálfstæð gjaldtökuheimild í frumvarpinu um innviðafélagið sjálft. Ég lagði til í framsögu minni að við færum yfir þetta milli umræðna í fjárlaganefnd og vonast til þess að við náum góðri sátt og sameiginlegri sýn á það hvernig þetta hangir allt saman. Það skiptir máli að komast hratt og vel af stað til að hægt sé að láta verkin tala.