157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:45]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið þó að engin sé spurningin. Það sem hv. þingmaður segir í raun er að meirihlutaálitið sé ekki rétt. Það er stórmál. Það sem hv. þingmaður talar um að við getum gert á milli umræðna er ekki lítið mál, en það snýr að gjaldtökuheimildinni. Fallið hafa hæstaréttardómar út af þjónustugjöldum og hið opinbera hefur verið gert afturreka með þjónustugjöld. Það er skrifað út að hér sé um þjónustugjald að ræða, þegar þau eru of há og notandinn greiðir fyrir meira en það sem snýr að skilgreindri þjónustu. Það er eins gott að vanda sig í þessu. Þetta er ekki eitthvað sem við gerum í stuttum kaffitíma, það er bara ekki þannig.

Virðulegur forseti. Hér hefur verið talað um og byrjað er að stjörnumerkja og lofa hlutum. Ég minntist ekki á Fljótagöngin sem menn hafa nefnt en þau eru dæmi um eitthvað sem var búið að lofa í tengslum við þetta mál en komið hefur fram að í það minnsta 18,5 milljarðar þurfi að koma frá ríkissjóði í það verkefni ef það væri sett inn í innviðafélagið. Þeir fjármunir eru ekki til staðar.

Við höfum auðvitað ekkert rætt aðkomu kjörinna fulltrúa og við höfum heldur ekki rætt kjarna málsins í þessu, þetta sérstaka samgöngukerfi. Það liggur alveg fyrir að Kjalarnesið, eins og meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur sett inn, mun ekki virka að öllu óbreyttu. Það er ábyrgðarhluti að ganga frá frumvarpi og gera það að lögum án þess að við séum búin að vinna málið almennilega og svara þessum spurningum.