157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir svarið. Ég held að þetta séu allt hlutir sem hægt er að ná yfir en sumt hefur sinn tíma og það er innviðafélagsins að greina einstakar hugmyndir. Það er ekki verið að gefa loforð með því að stjörnumerkja tilteknar framkvæmdir í samgönguáætlun heldur er í raun verið að gefa merki um verkefni sem koma til greina að fari inn í innviðafélag. Greiningin er eftir og það á að vera alveg skýrt, líka í nefndaráliti meiri hlutans. Það sem ég vék að að þyrfti að hnykkja á varðandi gjaldtökuheimildina er að það hafa alveg komið fram málefnaleg sjónarmið hér og í samtölum þingmanna á milli að hugsanlega sé ekki nógu skýrt hvernig þetta félag geti orðið eins og snjóbolti til að koma hlutum í verk. Þá þarf að vera skýrt í gjaldtökuheimildinni að gjöldin skuli miðast við að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreindra samgöngukerfa. Þetta er meðal þess sem ég held að væri gott að fara yfir í nefndinni. Fjármálaráðuneytið hefur verið að rýna þetta eftir m.a. samtöl í þingflokkum til að hafa þetta skýrt. Það er alveg rétt sem þingmaðurinn segir: Þetta þarf að vera skýrt og standast alla skoðun. Þess vegna erum við að vanda okkur í þessu og ég held að það sé bara prýðilegt að fara yfir það milli 2. og 3. umræðu í þinginu.