157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:50]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Hann segir réttilega að þetta sé ekki nógu skýrt, en þetta er meira en ekki nógu skýrt því að meirihlutaálitið skrifar í raun út að það sé ekki hægt að búa til félag sem hafi þessi snjóboltaáhrif, þ.e. sem safnar eigin fé í móðurfélagið. Það er alveg skýrt í meirihlutaálitinu. Sömuleiðis segir hv. þingmaður að ekki sé búið að gefa loforð. Jú, jú, það er búið að gefa loforð. Búið er að lofa Fljótagöngum og talað um að innviðafélagið gæti tekið þau. Við erum ekki bara með innviðafélagið, við erum líka með samgönguáætlunina og fjármálaáætlunina og annað er útilokað en að skoða þetta í samhengi. Við finnum engin merki um fjármuni sem eiga að fara í Fljótagöngin sem búið er að lofa, það er ekkert flókið. Öll umræða nefndarinnar var um það að menn töldu að það ætti að fjármagna Fljótagöngin sem búið var að lofa með því að nota afraksturinn af öðrum samgönguframkvæmdum til að greiða þau niður. Það er ekki hægt þannig að auðvitað þurfum við og ábyrg stjórnvöld hljóta annaðhvort að þurfa að segja hvar fjármunirnir séu fyrir Fljótagöngum, sem á að hefjast handa við á næsta ári, eða að þau ætli ekki að standa við Fljótagöng. Það eru bara tveir valkostir í því. Eftir stendur líka að það er alveg rétt að þetta er ekki lítið mál þegar kemur að gjaldtökuheimildum, þetta er kjarnamál. Það er líka kjarnamál hvað er stjörnumerkt. Byrjað er að stjörnumerkja og ljóst er að það sem er stjörnumerkt uppfyllir ekki þær kröfur sem þarf til þess að hægt sé að setja það í innviðafélagið. Innviðafélagið þarf ekkert að meta það af því að hver maður sér að hjáleiðirnar eru ekki til staðar. Þar af leiðandi geta menn (Forseti hringir.) blásið þetta út af borðinu. Auðvitað þurfum við, virðulegi forseti, að vera með þetta á hreinu og þá er ekki hægt að gera þetta á einhverjum handahlaupum.