innviðafélag.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um innviðafélag frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta er mál sem ég vil meina að skipti þingið gríðarmiklu máli og ég er í raun búinn að hlakka til að takast á við þetta verkefni eiginlega frá því að ríkisstjórnin birti málaskrá sína og það fór að glitta í stofnun svokallaðs innviðafélags. Við höfum auðvitað búið við það um langa hríð hér á Íslandi að vera fámenn þjóð í stóru landi og gríðarlegur kostnaður hefur verið fólginn í því að byggja hér upp samgöngumannvirki og samgöngur með þeim hætti að við náum að nýta alla kosti landsins okkar o.s.frv. Það hefur reynst okkur ærið verkefni að taka fyrir uppbyggingu á stórum og mikilvægum samgöngumannvirkjum og þau hafa í raun þurrkað upp það fé sem hefur verið til staðar í samgönguáætlun í ansi mörg ár. Við þekkjum það ágætlega að geta t.d. eingöngu verið með eina stórframkvæmd í gangi á hverju ári til þess að liðir eins og viðhald fari ekki úr skorðum. Þannig að ég vil meina að það sé um margt jákvætt, að við séum hér að ræða stofnun á félagi sem er ætlað í raun að byggja upp okkar innviði, fara í nýframkvæmdir fyrst og fremst auðvitað, af því að hér getum við verið með umtalsvert fé til framkvæmda sem ekki færi inn á ríkisreikning og yrði ekki liður í t.d. samgönguáætlun. Mér finnst það vera jákvætt.
Ég horfi kannski fyrst og fremst til þeirra skrefa sem við höfum þó stigið á þessari vegferð í gegnum tíðina. Mig langar til að minnast á svokallað Hvalfjarðargangamódel sem var algjör breyting fyrir okkur Íslendinga þegar því var komið á. Það var eins konar PPP-verkefni og ég vil leyfa mér að segja að það hafi gengið í sjálfu sér mjög vel. Það var auðvitað óvissa í upphafi og það voru úrtöluraddir um að hlutirnir myndu ganga upp og ég kannast nú m.a. við það að sá sem hér stendur hafi haldið því fram að hann myndi sennilega aldrei keyra þessi göng því að það yrði ekki hægt að setja göng undir Hvalfjörð. En það reyndist nú vera bábilja.
Ef við horfum á frumvarpið eins og það liggur fyrir þá er nokkuð mörgum spurningum ósvarað. Ég verð að segja að maður hefði viljað taka umræðu um innviðafélag áður en við hefðum farið í samgönguáætlun. Nú veit ég að það gekk kannski brösuglega að koma saman þessu frumvarpi þannig að tímasetningin er þessi. En við þurfum að vanda okkur í þessari umræðu og það er fullt af spurningum sem hefur verið spurt um innviðafélagið sem ekki hefur verið svarað og við ættum að leitast við að reyna að svara hér á þinginu í umfjöllun um málið og í nefnd þó að við getum kannski ekki svarað öllum spurningum.
Mig langar líka að nefna, af því að við höfum verið hér í umræðu um samgönguáætlun, að mér fannst nokkuð skemmtilegt hjá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að tína til verkefni sem mögulega kæmu úr samgönguáætlun og færðust yfir til innviðafélagsins, framkvæmdir sem eiga að vera fjármagnaðar í samgönguáætlun, og hvernig yfirfærslan til innviðafélagsins gæti aukið framkvæmdir eða bætt þá í fjármagn til samgönguáætlunarinnar. Mér fannst það áhugaverður punktur þó að ekki hafi kannski beinlínis verið að lofa því. En ég ætla samt að segja við meiri hlutann að það er auðvitað þannig að þegar við setjum fram svona dæmi eins og þarna er þá má alveg búast við því að það búi til væntingar hjá almenningi um að þetta verði framkvæmt, þetta verði fyrsta verkefni innviðafélagsins, sem eðli máls samkvæmt verður ákvörðun innviðafélagsins sjálfs. Það er ekki þannig að meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar ákveði forgangsröðun verkefna.
Ég velti því líka fyrir mér, af því að við höfum karpað hér um hvort samgönguáætlun sé fullfjármögnuð o.s.frv., að í samgönguáætlun er gert ráð fyrir gangagerð. Þar hafa menn verið að takast á um forgangsröðun. Má í því sambandi nefna að þar varð nokkur kúvending hjá hæstv. ráðherra í afstöðu hans til þeirra framkvæmda sem ættu að vera í algjörum forgangi og gerði hann breytingu í þá átt að færa Fljótagöng fremst í þá áætlun og taka út Fjarðarheiðargöng. Það vakti, eins og við munum öll hér, gríðarlega umræðu og það verður auðvitað að halda því til haga að maður skilur mjög vel vonbrigði Austfirðinga með þessa niðurstöðu. En þetta er ákvörðun ráðherra og meiri hlutans að þessu sinni. Mér fannst líka óheppilegt í þeirri umræðu að ráðherrann skyldi lýsa því yfir að hann væri ekki bundinn af ákvörðunum fyrri ráðherra. Ég vil segja að það er ekki gott veganesti inn í það sem við erum að fara að gera hér því að ég held að það sé einlægur vilji okkar allra að samgönguáætlun, langtímaáætlun, fái að halda sér í þeirri mynd sem verið er að ákveða þó að auðvitað séu alltaf gerðar ákveðnar jústeringar á henni. Þannig gæti innviðafélagið mögulega að einhverju leyti hjálpað til.
Þess vegna vil ég nefna hér, af því að ég var að ræða um þessa kosti varðandi Kjalarnesið, að þegar maður horfir á fjármögnun á Fljótagöngum þá veltir maður fyrir sér hvar hennar sést stað því að hún er ekki í samgönguáætlun og hún er auðvitað eðli máls samkvæmt ekki komin á dagskrá hjá innviðafélaginu. Reyndar má færa rök fyrir því að frumvarpið eins og það lítur út núna sé kannski ekki alveg til þess fallið að það sé augljóst að það verði hægt að setja þessa fjármuni þarna inn, alla vega að óbreyttu. Ég velti því líka fyrir mér hvort það hefði kannski ekki verið skynsamlegt fyrir t.d. umhverfis- og samgöngunefnd, í staðinn fyrir að setja hér inn 15 kosti sem tengjast breytingum á Kjalarnesi, að setja einfaldlega inn hlut Fljótaganga þannig að það væri alla vega ljóst að sú aðgerð væri fjármögnuð með þeim hætti. Við sjáum hvað setur.
Ég nefndi hér áðan að viðmið mitt hefði verið m.a. að horfa til Hvalfjarðarganga. Það var verkefni sem ég held að við séum öll sammála um að hafi gengið mjög vel og það var tiltölulega skýrt verkefni. Það var safnað ákveðnu hlutafé og síðan voru fjárfestar sem komu að því máli. Heimild var veitt til gjaldtöku og það var alveg skýrt ákvæði um það að þegar Hvalfjarðargöng væru að fullu greidd myndu þau færast yfir í eigu ríkisins og færast yfir til Vegagerðarinnar. Það lá alveg skýrt fyrir allan tímann. Síðan höfum við séð í Færeyjum að Færeyingar hafa tekið upp að einhverju leyti þetta módel og í raun framkvæmt öll sín göng á þeim grunni. Það er athyglisvert að fylgjast með Færeyingum. Þeir eiga auðvitað um margt einfaldara líf en við, þarna er auðvitað lítið um vegi aðra en bara göngin þannig að fjármögnun þeirra heilt yfir er væntanlega mun einfaldari og minni en hjá okkur vegna þess að Færeyjar eru ekki stórt land í þeim skilningi.
Innviðafélagið er hugsað með aðeins öðrum hætti en Hvalfjarðargöngin. Þar er gert ráð fyrir því að félaginu sé heimilt að fara í mannvirkjagerð og eigi að halda utan um mannvirkjagerð á Íslandi í tengslum þó við samgönguáætlun að ákveðnu leyti. Þá er gert ráð fyrir því að það séu sérmerkt verkefni í samgönguáætlun sem félagið á þá kost á að fara í. Það verður að velja verkefni og horfa til sinna hagsmuna sem félags varðandi hvaða kostir verða fyrir valinu og hvaða kostir verða látnir bíða. Það er alveg skýrt í mínum huga að hvorki hæstv. fjármálaráðherra né hæstv. innviðaráðherra eru að fara að skipa stjórn félagsins fyrir hvaða verkefni verða valin. Það hlýtur að koma til kasta stjórnar að ákveða hvernig það er gert.
En maður veltir fyrir sér framgangi verkefna. Nú ætla ég að taka bara lítið dæmi: Segjum að fyrsta verkefni nýs innviðafélags verði að fara í Hvalfjarðargöng II. Mér finnst það ekki endilega vera skýrt hvernig framgangur þess verkefnis verður hvað varðar innheimtu veggjalda. Það er augljóst að á framkvæmdatíma og við undirbúning o.s.frv. — félagið getur farið að innheimta veggjöld þegar mannvirkið er risið og meðan verið er að ljúka þeirri fjármögnun þá getur það safnað í gegnum veggjöld. En hvað gerist síðan þegar mannvirkið er að fullu greitt? Hvað kemur þá upp? Er staðan þannig að menn halda áfram að rukka óbreytt gjald þrátt fyrir að búið sé að fjármagna og greiða upp þessa framkvæmd? Eða breytist gjaldskráin t.d. með þeim hætti sem mér fyndist vera augljós, að það eina sem gjaldskráin gæti gert til viðbótar væri að tryggja eigum við ekki að segja rekstur ganganna, viðhald og þjónustu? Það væri það sem væri hægt að innheimta í þessu innviðafélagi. En ég sé ekki fyrir mér að það sé hægt að innheimta gjald til að leggja móðurfélaginu til eitthvert sérstakt fjármagn til að fjármagna aðra samgönguframkvæmd á allt öðrum stað á landinu. Ég sé ekki að sú heimild sé fyrir hendi. Ég velti líka fyrir mér bara sáttinni með það og hvað fólk muni segja um það. Í mínum huga er augljóst að það er ekki til sátta fallið að vera að rukka t.d. hér á suðvesturhorninu til að leggja í göng úti um allt land eða á allt öðrum stað. Ég er ekki viss um að það væri greiðsluvilji til þess.
Mér finnst líka í þessari umræðu að ekki hafi verið svarað spurningunni sem varðar það, sem er í mínum huga augljóst, að þau verkefni sem eru arðbærust eru hér í nágrenni við höfuðborgarsvæðið þar sem flest fólk er og innheimta veggjalda mun verða raunhæfur valkostur til að greiða upp mannvirkin hratt og örugglega. Þá langar mig til að nefna að við gætum verið komin í skrýtna stöðu ef maður horfir til innheimtu veggjalda. Segjum sem svo að það gangi vel og hér verði lagst í hin ýmsu verkefni og þau verði í kringum höfuðborgina eða á höfuðborgarsvæðinu. Mig langar til að taka sem dæmi ef maður horfir á þessa valkosti sem hafa verið gefnir í samgönguáætlun: Ef einstaklingur sem býr í Borgarnesi og ætlar sér að fara t.d. hérna niður á þing, hann er þingmaður, þá byrjar hann á því að keyra veg sem er orðinn 2+1 vegur og uppbygging á honum hefur verið á höndum innviðafélagsins. Það er vegur sem er niður að Akrafjallsvegi og viðkomandi þarf að greiða veggjald fyrir þann hluta. Innviðafélagið er einnig búið að reisa Hvalfjarðargöng II og viðkomandi aðili er þá einnig rukkaður um gjöld í Hvalfjarðargöngum. Hann keyrir síðan um Kjalarnes þar sem hann er að fara í gegnum þriðju framkvæmdina sem hefur verið byggð af innviðafélaginu og greiðir veggjöld. Síðan fer hann yfir Sundabraut, mér sýnist það verða brú eins og staðan er núna, og greiðir þar veggjöld. Svo ákveður hann að taka Sæbrautarstokkinn niður á þing og greiðir þar veggjöld, reyndar ekki til innviðafélagsins heldur Betri samgangna. Hann kemur síðan niður á þing. Ég velti fyrir mér hvað gjaldið hjá þessum einstaklingi verður fyrir að keyra þessa leið. Nú á hann auðvitað ekki kost á hjáleiðum, (Gripið fram í.) alla vega ekki raunhæfar. Nei, viðkomandi mun ekki sigla, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. En við höfum ekki fengið svör við því hvernig þetta verður þegar um er að ræða svona verkefni þar sem eitt tekur við af öðru. Kannski er möguleiki á að setja það með einhverjum hætti inn í innviðafélagið og kannski eigum við eftir að ráða því til lykta og fá niðurstöðu. Það á bara eftir að koma í ljós. En þetta eru alla vega spurningar sem hafa vaknað og ég verð að segja að það eru kannski ekki beinlínis augljós svör við þeim.
Ég nefndi áðan Fljótagöng. Ég hef áhyggjur af því og ég velti fyrir mér hvernig menn ætla að fjármagna þau göng og þau samgöngumannvirki sem menn ætla innviðafélaginu að einhverju leyti og standast ekki þetta markaðspróf sem um er að ræða og þurfa verulega meðgjöf frá ríkinu. Hvernig ætla menn að búa um þann þátt? Þá meina ég aðallega varðandi innheimtu veggjalda og hvort það verði þá með þeim hætti að ríkið muni greiða þá viðhaldið á göngum eða þeim mannvirkjum sem verið er að reisa eftir að þau eru að fullu greidd, hvort það yrði þá greitt af hálfu ríkisins til innviðafélagsins.
Frú forseti. Það er mörgum spurningum enn ósvarað um þetta mál og ég var að vonast til þess að hluti þeirra myndi skýrast í þessari umræðu, en ég verð að segja að það er kannski ekki alveg þannig að svörin hafi fengist. Sérstaklega vil ég horfa til fjármögnunarinnar. Mér finnst að það þurfi eiginlega að liggja fyrir áður en þessari umræðu lýkur hvernig við ætlum að standa straum af því að greiða fyrir samgöngumannvirki sem eru t.d. á samgönguáætlun og verða hluti af innviðafélaginu. Við höfum ekki fengið svar við því hvort það sé hægt að rukka nægilega í þessi mannvirki þannig að það verði til eitthvert fé í innviðafélaginu til að nýta í aðrar framkvæmdir. Þeirri spurningu hefur bara einfaldlega ekki verið svarað og er það miður. Þess vegna vil ég segja að það hefði getað verið góður grunnur ef við hefðum náð þessu máli inn hér fyrr og við hefðum farið yfir þessi mál og reynt að koma fram með einhver skýr svör í þeim efnum.
Eins og staðan er núna þá blasir það við mér að við þingmenn verðum í einhverju myrkri við það að ákveða hvernig við viljum búa um innviðafélagið, hvort núverandi löggjöf sé nægilega skýr til þess að gefa okkur fullvissu um að við séum ekki að gera mistök. Það hefði t.d. verið góður bragur á því að þessu frumvarpi hefði t.d. fylgt útlistun — af því að það var töluvert rætt um sambærileg fyrirtæki á Norðurlöndunum — það hefði verið gott að fá útlistun á því t.d. hvaða atriði þau fyrirtæki hafa rekið sig á. Það var nefnt hér í umræðunni að það hefði t.d. þurft að breyta þessu félagi í Danmörku, Sund & Bælt, nokkuð oft til að laga það kannski að þeim raunheimum sem þar blöstu við. Kannski er til of mikils mælst að meiri hlutinn ætlist til þess að minni hlutinn treysti meiri hlutanum í blindni til að ráða þessum málum til lykta.