157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og vil koma aðeins inn í umræðuna varðandi þær spurningar sem þingmaðurinn setti fram. Við erum hér að fjalla um umgjörð, getum kannski sagt fyrstu umgjörð, alla vega ef við lítum til Danmerkur. Þar hefur lögum um Sund & Bælt verið breytt einum fimm sinnum. Ég held að við þurfum að vera viðbúin því og af hverju segi ég það? Ekki vegna þess að ég telji þetta mál ekki vel undirbúið. Mér finnst það vera vel undirbúið og mér finnst þingmenn nálgast þetta mjög málefnalega. Nei, heldur vegna þess að ég held að við þurfum að vera viðbúin því að þegar innviðafélagið er komið af stað og það fer í raun í beinar viðræður um fjármögnun á einstökum framkvæmdum eða svæðum þá geta komið upp spurningar. Í Danmörku hefur það leitt til þess t.d. að það séu sett sérlög um stærstu framkvæmdirnar vegna þess flækjustigs og til að eyða óvissu um ákveðna þætti. Ég held að við þurfum að vera búin undir það.

Við erum um leið að tryggja aðkomu þingsins í tengslum við einstaka samninga ef ekki kemur til sérlaga og það er þá umhverfis- og samgöngunefnd annars vegar og fjárlaganefnd hins vegar sem munu fara yfir þau mál. Mér finnst skipta mjög miklu máli að við hleypum innviðafélaginu af stað þannig að það geti unnið að greiningu á einstökum verkefnum og átt bein formleg samskipti við mögulega fjármögnunaraðila vegna þess að þó að það hafi átt sér stað ágætissamtal, eins og fram kom við umfjöllun fjárlaganefndar um þetta mál við fjármögnunaraðila, þá er auðvitað enginn enn þá kominn með umboð til að eiga í viðræðum fyrir hönd innviðafélagsins. Í slíkum viðræðum geta ýmsir hlutir skýrst og þeir koma þá eftir atvikum aftur inn á borð þingsins þegar þar að kemur. En við þurfum að fara af stað.