innviðafélag.
Frú forseti. Ég merkti kannski ekki beina spurningu til mín í þessu en hv. þingmaður fór vel yfir þær vangaveltur sem ég var að nefna. Ég get ekki beinlínis sagt að í hans umfjöllun hafi falist einhver skýr svör. Ég tek auðvitað undir með þingmanninum, að þetta verkefni mun ekki fæðast fullskapað og það verða klárlega einhverjar hindranir í veginum sem mögulega þarf að skoða og eru jafnvel kannski að einhverju leyti séríslenskar. En ég held að við ættum samt ekki að gera sömu mistök og þau fyrirtæki sem við höfum verið að bera okkur saman við erlendis. En ég verð að segja að maður hefur enga skýra leiðsögn í frumvarpinu um hvaða áskoranir þar hafa verið. Það er kannski fjallað um þær almennum orðum en maður setur sig í raun ekki á dýptina inn í það. Ég heyrði að hv. þingmaður nefndi líka að setja sérlög og auðvitað þegar maður var að horfa til þessa verkefnis var maður líka að horfa til Hvalfjarðarganga og módelsins sem þar var og horfa á hlutina í því ljósi.
Ég vil segja t.d. bara með þá framkvæmd að auðvitað var mikið álitamál á sínum tíma hvort ætti að hætta gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum, sem var í rauninni búið að lofa. En staðan var einfaldlega þannig að mjög fljótlega eftir að göngin voru uppgreidd áttuðu menn sig á því að það var kannski ekkert langt í að við þyrftum að fara í Hvalfjarðargöng II vegna þess að það væru augljósar áskoranir í umferðarrýmd mannvirkisins. Þess vegna veltir maður fyrir sér hvort það hefði verið hægt á þeim tíma að gera hlutina þannig úr garði að Hvalfjarðargangamódelið hefði fengið að halda sér. Við hefðum haldið áfram að greiða í gömlu göngin til að búa til ný göng og það hefði verið alveg skýrt hvernig það hefði verið gert. Það var í rauninni svona fyrsta hugsunin með einhvers konar innviðafélag, hvað það varðaði. En þá komu upp nákvæmlega sömu vangaveltur og hér hafa verið uppi, t.d. um skattheimtu o.s.frv. (Forseti hringir.) en þarna er augljóst að þetta er í rauninni eiginlega nánast sama framkvæmdin vegna þess að það þurfti augljóslega að vera samgangur á milli þessara tveggja ganga.