157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:18]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta svar og vangaveltur og ég get tekið undir þær að mjög mörgu leyti. Ég held að það sé svona ákveðin innbyggð spenna í því hvernig þetta er leyst af hendi, annars vegar milli þess að hafa gegnsæi og tengja gjaldtöku við einstakar framkvæmdir og síðan um að hafa í raun sveigjanleika innan félagsins til að það eflist, til að geta tekist á við fleiri og stærri verkefni hraðar. Hið fyrra lýtur að ákveðinni sátt, eins og þingmaðurinn nefndi í ræðu sinni, að það bæri að varast að innheimta í einu horni landsins rynni til framkvæmda í öðru horni landsins þannig að það væri rofið samhengi milli þess að greiða gjöld og fara um tiltekið mannvirki. En um leið þarf að hafa nægjanlegt svigrúm til að þessi snjóbolti geti runnið af stað og fleiri og stærri verkefni komist til framkvæmda. Það mun nýtast öllum landshlutum vegna þess að í þeim tilvikum sem um er að ræða verkefni sem þegar eru fjármögnuð á samgönguáætlun þá myndi það að færa þau til innviðafélags skapa svigrúm innan samgönguáætlunar til að ráðast í fleiri verkefni og þá um allt land og af ýmsum gerðum. Dæmið sem er nefnt í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar er dæmi af því tagi, þar sem Kjalarnesupphæðin, 6,3 milljarðar, er útfærð í ýmis verkefni sem hafa verið skilgreind í forgangi en eru ekki innan núverandi ramma samgönguáætlunar. Þetta er svona heildarsamhengið. Það er ekki alveg einfalt að grípa það strax en ég held að þegar við förum að vinna með þetta og sjá hluti verða að veruleika þá muni þetta í raun skapa og auka stuðning við þessa nálgun. Um leið og fyrstu verkefnin fara af stað skapast svigrúm á samgönguáætlun til að fara í ýmislegt sem kallað hefur verið skýrt eftir víða um landið.